Þjóðin ræður í Icesave! Ekki kommúnístaleiðtoginn!


   Kommúnistaleiðtoginn  Steingrímur  J. ( Lilja Mósesdóttir
þingmaður VG  kallaði  flokkinn sinn  kommúnístaflokk  fyrir
nokkru) - vill ekki  að þjóðsvikasamningurinn  sá  þriðji í Ice-
save fari í þjóðaratkvæði. Þrátt fyrir að þar eigi hann heima,
og hvergi annars staðar. Því þjóðin úrskurðaði í málinu síðast
með afgerandi hætti 6 mars s.l. Lokaorðið er því  hjá þjóðinni,
en það er einmitt HÚN sem kæmi til með  að greiða ólögvörðu
skuldadrápsklyfjar Icesave-glæpamannanna um ókomna tíð,
sem nýlenduveldi ESB, Bretar og Hollendingar, ætla að kúga
upp á þjóðina með stuðningi hérlendra kommúnista og sósíal-
demókrata.

   Málið er hápólitískt, skýrt og klárt! Verður hin íslenzka þjóð
kúguð í skuldaánauð, eymd og fáttækt út öldina, eða ekki? Því
eins og leiðarahöfundur Financial Times orðaði það svo rétti-
lega í gær. ,,BRESK EÐA HOLLENSK YFIRVÖLD MUNDU ALDREI
TAKA Á SIG KRÖFUR ERLENDRA INNISTÆÐUEIGENDA UPP   Á
ÞRIÐJUNG AF LANDSFRAMLEIÐSLU EF EINN AF STÓRU BÖNKUN-
UM ÞEIRRA FÆRI Á HAUSINN".

  Icesave-þjóðsvikin hin þriðju eru það alvarleg að jafnvel breskt
virt blað tekur þannig undir málstað Íslands og skattgreiðenda
þess. Sem sýnir hversu einbeittur  þjóðsvikarvilji stjórnvalda var
og er  í þessu máli. Þjóðsvikavilji sem hlýtur að leiða þessa svika-
hrappa Íslands inn í dómssali í fyllingu tímans. Og þá alveg sér-
staklega sósíaldemókratann Jóhönnu Sig og  kommúnistann
Steingrím J!

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKERT ESB EÐA ICESAVE!

   tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook!
mbl.is Vill ekki þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í þessu skal ég berjast til síðasta blóðdropa. Sumt er einfaldlega ekki hægt að láta yfir sig ganga og ALDREI skal ég samþykkja það þegjandi og hljóðalaust að láta setja á mig, börnin mín og barnabörn, saklausa einstaklinga, bæði hand og fótjárn. Verði það gert án samþykkis þjóðar minnar skal það ekki verða í mínum verkahring að rétta valdhöfunum mótspyrnulaust hrísluna til að húðstrýkja mig sjálfa og börnin mín með. Þau skulu hafa mikið fyrir því og sjá eftir því alla sína ævi.

assa (IP-tala skráð) 15.12.2010 kl. 02:38

2 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Maður veltur því óneitanlega fyrir sér hvort að stjórnarnadstöðu atvinnupólitíkusinn og jarðfræðingurinn, Steingrímur, hafi vit til þess að hafa skoðun á þessu máli. Ekki held ég að gráhærða og illa menntaða lesbían bæti þar mikið úr skák. Stjórnmálamenn Íslands eru lélegt jók, það er bara þannig.

Guðmundur Pétursson, 15.12.2010 kl. 05:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband