Þetta samstarf við Breta hefði a.m.k mátt bíða !


    Viljayfirlýsing umhverfisráðuneytisins og sendiherra Breta
á Íslandi um samstarf við Breta um eftirlit með eldsumbrotum
á Íslandi, hefði  a. m. k mátt bíða í  ljósi mjög svo  óvinveittra
aðgerða breskra stjórnvalda í garð Íslendinga að undanförnu.
Ber þar hæst ólögvarin Icesave-fjárkúgun á hendur íslenzkum
almenningi, grófar hótanir í garð Íslendinga vegna veiða okkar
á makríl Í EIGIN FISKVEIÐILÖGSÖGU, og óbættan skaða Breta
vegna hinna ófyrirgefanlegu hryðjuverkalaga þeirra á Ísland
haustið 2008. 

   En í ljósi þess að Svavars-undirlægjuhugarfarið ræður nú
för í umhverfisráðuneytinu, verður því miður að horfa á þetta.

  Vonandi að Svarvars-undirlægjuhugarfarið fari senn að renna
sitt skeið á enda í íslenzku stjórnkerfi! Og þótt fyrr hefði verið!
mbl.is Samstarf við Breta um eftirlit með eldsumbrotum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband