Nú fær utanrkisráðherra loks málið !


   Nú fær utanríkisráðherrann Össur Skarphéðinsson
loks málið þegar bandarísk stjórnvöld eiga í hlut. Og
bara gott með það! En þessi pólitíski  vindhani heldur
kjafti  þegar  bresk  og  hollenskt stjórnvöld fara með
offorsi í anda nýlendumennsku gagnvart íslenzkri þjóð
í Icesave. - Og einnig  með setningu hryðjuverkalaga
Breta. Þá þegir utanríkisráðherra!  Og bætur um betur
þegar  hann skuli þar að auki  voga sér að vera tilbúinn
að ljá samþykki sitt á því að leyfa erlendum yfirvöldum í
Brussel eina grófustu íhlutun í íslenzk innanríkismál með
dælingu á mörgum milljörðum í þeim tilgangi að  MÚTA
Íslendinga til fylgilags  við  ESB.  Með tilheyrandi afsali
fullveldis  og auðlinda. Þá snúa gleraugu utanríkisráð-
herra á haus!  

   Já maður  kemst  virkilega  í  vont skap þegar horft er
upp á  svona  yfirgengilega  HRÆSNI  utanríkisráðherra.
Og  auðvitað  klappar  kommúnistinn  og kanahatarinn
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra með. Þó það nú
væri! 

   Að sjálfsögðu eiga íslenzk stjórnvöld að gæta hagsmuna
Íslands og þegna þess HVAR OG HVENÆR sem er, og beita
til þess fullri hörku ef með þarf. -  En framferði Bandaríkja-
manna í öllu þessu Wikileaks máli er með hreinum ólíkindum. 
Að bandarískur AULAHÁTTUR skuli vera  kominn á  það  hátt
stig í hinni  bandarísku  stjórnsýslu, að leyndustu skjöl ríkisins
skuli nánast liggja frammi fyrir hunda og mannafótum út um
allar trissur,  er hreint klikk! -  En fyrir það skuli  svo bakari
hengdur fyrir smiðinn, og það í þingmannsstarfi uppi á Íslandi,
er svo absúrd-leikhús, sem hlýtur að teljast toppurinn á allri
aulamennskunni. - Vitleysunni! 
mbl.is Sendiherrann kallaður á fund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Við erum nú höfundar að stærsta hruni heims og mér virðist Birgitta einhvað hafa komið of nálægt Asagne sem er eftirlýstur krimmi sama hvað við segjum. Það að stuðla að gögnum sé stolið frá þjóð er ekkert grín. Brussel leaks  þorðu ekki að gera alvöru úr sínum stefnu/hótunum.

Valdimar Samúelsson, 8.1.2011 kl. 21:42

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Góður pistill Guðmundur.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 9.1.2011 kl. 00:37

3 Smámynd: Elle_

Já, merkilegt, hann heldur sko kj - - - yfir nýlendukúgunum gegn eigin þjóð og ekki neinu öðru.

Elle_, 9.1.2011 kl. 01:16

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Össur er og verður vanhæfur til að gegna ráðherramennsku, það er málið sem við þurfum að leysa hið snarasta því að þetta er löngu orðið pínlegt fyrir okkur að þura horfa upp á þennan gamla -&æ-eepuullxxx gegna starfi utanríkisráðherra.

Sigurður Haraldsson, 10.1.2011 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband