Allt óbrett hjá kommunum í Vinstri grænum.


   Að sjálfsögðu breyttist nákvæmlega ekkert eftir  fund
þingflokks Vinstri grænna í gær. Eða eins  og Steingrímur
J. hinn  gamli  kommúnístaleiðtogi  orðaði  það  að engin
breyting hefði orðið á afstöðu þingflokksmanna til ríkis-
stjórnarinnar. Og bætti við. ,,Mörgum hlýtur að létta við
það".

   Lilja Mósesdóttir þingmaður VG sem af óskiljanlegum
ástæðum var kjörin maður ársins á Útvarpi Sögu um ára-
mótin, lýsti mikilli  ánægju sinni yfir fundinum á sömu út-
varpsstöð í gærmorgun.  Þessi sama manneskja sem líkti 
Vinstri grænum  sem  kommanistaflokki  fyrir  nokkru eftir
flokksráðsfundi  hans  og  ásakaði  flokksforystuna  um
flokksræði. Er nú sátt við kommúnístanna sína í VG.

  Og Ásmundur Einar Daðason þingmaður VG og formaður
Heimssýnar toppaði svo hræsnina og blekkingu  sína   í
Evrópumálum. Segist enn styðja hina ESB-sinnuðu vinstri-
stjórn og flokk sem hleypti Brussel-lestinni af stað.  Sem
enn virðist komast upp með það innan stjórnar Heimssýn-
ar, sem virðist komin í algjöra gíslingu kommanna í VG.

   Sem sagt. Allt óbreytt hjá kommunum í Vinstri grænum.
Hin öfgakennda alþjóðahyggja þeirra og sósíaldemókrata
þeirra í ríkisstjórn er límingin í þeirra samstarfi og þjóðar-
svikum. -  Þeim að troða Íslandi inni í ESB og samþykkja
skuldadrápsklyfjarnar í Icesave...........

   Svo auglóst er það !

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Koma dagar,koma ráð.

Helga Kristjánsdóttir, 8.1.2011 kl. 02:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband