Þurfum þjóðhollt hægriafl! Ekki enn einn vinstriflokkinn!


   Upplausn er í íslenzkum stjórnmálum. Vinstristjórnin
komin að fótum fram. -  Klofningur úr Vinstri grænum
boðar enn einn vinstriflokkinn. Sem er ekki á bætandi
á hina  þjóðfjandsömu vinstrimennsku á Íslandi,  með
hinn  andþjóðlega sósíaldemókrataisma  í fararbroddi,
er grasserar  meir  og minna  í  Fjórflokknum. Ekki síst
í  hinum  undarlega  andlausa  Sjálfstæðisflokki,  sem
hallast meir og meir til vinstri eftir sem sósíaldemókröt-
unum þar á bæ vex ásmegin.
 
   Vinstrimennskan og vinstrisinnuð gildi og viðhorf hafa
alltof mikið litað íslenzk stjórnmál. Ekki síst  þau sósíal-
demókrataísku. - Sem m.a  komu EES-mistökunum á er
skópu  eitt  mesta efnahagslegt  hrun  Íslandssögunar.
Með tilstyrki sósíaldemókratanna í Sjálfstæðisflokkunum.
Og ætluðu  svo  að toppa  þjóðarsvik  sín  með að koma
Icesave-skuldadrápsklyfjunum á þjóðina. Sem kom í veg
fyrir það með tilstuðlan forseta síns. 

  Stjórnleysið, upplausnin  og  aulahátturinn  í  íslenzku
stjórnarfari orsakast fyrst og fremst af skorti á pólitískri
þjóðhollri  kjölfestu frá  hægri. Borgaralegri sterkri ÞJÓÐ-
HYGGJU, er tali kjark og þor í þjóðina. Og standi sterkan
vörð um íslenzka þjóðarhagsmuni, íslenzkt fullveld  og
sjálfstæði. Já nýtt þjóðhollt hægriafl!

   Í Guðs bænum ekki enn einn vinstriflokkinn í viðbót!!!
Þjóðin er komin upp í kok af vinstrimennskunni, og öllu
því stjórnleysi, upplausn og undirlægjuhætti sem henni
fylgir.  
mbl.is Íhuga að stofna þingflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Lestu vel þessa grein vel og umræðuna þar. Skoðaðu tengla. Grunur ykkar um landráð er nú kyrfilega á rökum reistur og þetta verður að hrópa af hæstu tindum.

Það er nú eða aldre og ég er ekkert að grínast með það.

Jón Steinar Ragnarsson, 15.4.2011 kl. 03:01

2 Smámynd: Viðar Friðgeirsson

100% sammál þér Guðmundur.

Rétt hjá þér Jón Steinar, þetta er ekkert grín heldur grafalvarlegt mál.

En hvað er til ráða? Bylting? Þær hafa verið gerðar af minna tilefni.

Ég hef bloggað um það áður að ég teldi að eini tilgangurinn með stjórnlagaþingi væri að afnema ákveðin ákvæði og setja ný sem heimiluðu Samfylkingunni að afhenda ESB landið og miðin án þess að verða ákærð fyrir landrá

Að innköllun kvótans væri til að afhenda hann ESB á silfurfati hafði maður hinsvegar ekki gert sér grein fyrir þó maður hafi velt því mikið fyrir sér hvernig og hvert og hver ætti að úthluta honum aftur og eftir hvaða leikreglum. Ekki í mínum villtustu draumum, en nú liggur það ljóst fyrir.

Tilgangurinn með stjórnlagaþingi og innköllun kvóta er skuggalegt plott sem nú hefur verið flett ofanaf.

Hvað það er hinsvegar sem rekur Samfylkinguna áfram í þessari helförer mér hinsvegar hulin ráðgáta.

Það verður að stöðva þessi áform strax. Tek undir með þér; það er nú eða aldrei!

Viðar Friðgeirsson, 15.4.2011 kl. 10:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband