Skandall að hrunráðherrar sitji enn !


    Mesti skandall hrunsins 2008 er að enn skuli sitja tveir
ráðherrar í ríkisstjórn Íslands, sem sátu í Hrunstjórninni,
þau Jóhanna Sigurðardóttir hrunráðherra og Össur Skarp.
hrunráðherra.  Almesta hneykslið er  hins vegar það, að
þeir sem skópu hið raunverlega hrun vísvitandi   og með
köldu blóði, útrásarmafían, skuli enn öll  leika lausum hala, 
einmitt í stjórnartíð  þessara sömu hrunráðherra, Jóhönnu
og Össurar.

   Það alvarlegasta er að við hrunferil Jóhönnu og Össurar
bætast Icesave-þjóðsvikin, sem framin voru VÍSVITANDI
og með KÖLDU BLÓÐI, með dyggum stuðningi Steingríms
J. fjármálaráðherra. Þjóðarsvik, sem hljóta að verða annað
mál Landsdóms innan skamms.

    Hin pólitísku réttarhöld yfir Geir H. Haarde einum eru því 
einn mesti  skrípaleikur í sögu réttarfars á Íslandi.   Enda
framin undir ógnarstjórn öfga-vinstrimanna, sem einnig
gera nú atlögu að fullveldi og sjálfstæði Íslands. 

    
mbl.is Mun skjóta máli til Mannréttindadómstóls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gæti ekki verið meira sammála.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 8.6.2011 kl. 00:27

2 Smámynd: Haraldur Hansson

Jafnvel þótt Össur hefði ekki setið í hrunstjórninni er það móðgun við fullorðið fólk með kosningarétt að hann skuli enn sitja á ráðherrastóli.

Makalaus ferð hans til Möltu vorið 2009 er ærin ástæða til afsagnar. Þá gerði hann sig sekan um trúnaðarbest gagnvart þinginu, utanríkismálanefnd og ríkisstjórninni. Síðan hefur hann bætt hverri bommertunni á fætur annarri á afrekalistann: Bullaði í Stokkhólmi og bullaði enn meira í Brussel og fór svo á fund í New York og sofnaði. Maðurinn er trúður.

Haraldur Hansson, 8.6.2011 kl. 01:28

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Innilega sammála Guðmundur.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 8.6.2011 kl. 02:27

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Haraldur hann var staðgengill Ingibjargar í veikindum hennar, hann er því vel komin þarna ásamt hinum, og svo auðvitað ættu bæði Davíð og Halldór að vera þarna efstir á blaði.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.6.2011 kl. 09:13

5 Smámynd: Elle_

Allt hárrétt, Guðmundur.  Næst hlýtur tími Jóhönnu, Steingríms og Össurar að koma fyrir dómi, opnum vonandi. 

Elle_, 10.6.2011 kl. 00:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband