Framboð ESB-og Icesave-sinna ! NEI TAKK!


   Framboð sósíaldemókratans Þóru Arnórsdóttir RÚV-konu,
er örvæntingar-framboð ESB-og Icesave-sinna til að hertaka
Bessastaði og forsetaembætti Íslands. Því með forseta and-
vígan aðild Íslands á Bessastöðum, tilbúinn að verja fullveldi 
Íslands af hörku, eins og að koma í veg fyrir Icesave-þjóðar-
svikin, er vonlaust dæmi fyrir ESB-trúboðið á Íslandi. Því skal
nú öllu  til  tjaldað  og  öllu  til  kostað  til að koma í  veg fyrir
glæstan sigur Hr.Ólafs Ragnar Grímssonar forseta Íslands.
Því á að segja NEI TAKK við framboði Þóru!

   Það er hámark fáviskunnar að halda því fram   að forseti
Íslands sé og eigi ekki að vera pólitískur.  Bara það að vera
þjóðkjörinn er hápólitísk athöfn og í eðli sínu hápólitískt.

   Á Bessastaði þarf íslenzka þjóðin hvorki strengjabrúður
eða puntudúkkur á þeim óvissutímum sem nú ríkja. Heldur
STERKAN  ÞJÓÐHYGGJUMANN sem tilbúinn er að verja
íslenzkt fullveldi og sjálfstæði, og tala fyrir íslenzkum þjóð-
arhagsmunum.

   Sá maður er í dag Herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands!  ALLIR sannir þjóðfrelsissinnar munum því gera
sigur hans sem glæsilegastan þann 30. júní n.k.
mbl.is Á ekki að vera pólitískt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Guðmundur Jónas; æfinlega !

Ekki hægt annað; en að taka fyllilega, undir þessi tímabæru og kröftugu aðvörunarorð þín, fornvinur góður.

Með beztu kveðjum; sem jafnan, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.4.2012 kl. 21:27

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir félagi Óskar Helgi!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.4.2012 kl. 21:46

3 identicon

Spurningin er: Hvað eru margir íslendingar sem eru sér meðvitaðir um að tilveran er "pólitík". Launin,tímavinna, mánaðarlaun, ellilífeyrir, örorkulífeyrir, atvinna, atvinnuleysi og svona mætti lengi telja. Skattamál, (afskriftir af lánum, kúlulán o.m.fl.) Ég treysti aðeins núverandi forseta til að hemja hænsnin sem sitja á alþingi og í ríkisstjórn. Vonandi eru það ósannar fréttir að Hreyfingin standi við bakið á núverandi ríkisstjórn. Þá er okkar eina von forseti vor. Hann einn getur séð um að Quislingarnir handsali ekki lýðveldi íslendinga í hendur ESB.

Það sem Hitler fékk ekki í gegn með vopnabraki og lífum milljónum manna, fær Merkel á silfurfati með nokkrum Evrum.

Eigum við að samþykkja það?

Jóhanna (IP-tala skráð) 4.4.2012 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband