Jóhanna kýs átök og uppsker nú stríð!


   Sérhver þjóðhollur forsætisráðherra hefði við eitt mesta
efnahagshrun Íslandssögunar reynt að sameina þjóðina,
talað kjark í hana og eflt trú hennar á íslenzka framtíð,
og uppbyggingu hiðs  nýja  FRJÁLSA  ÍSLANDS. En ALLT
ÞVERÖFUGT við þetta hefur Jóhanna Sigurðardóttir gert.

  Frá fyrsta degi í eimbætti forsætisráðherra hefur Jóhanna
Sigurðardóttir setið á svikráðum við þjóðina. Hefur frá upp-
hafi stundað átakastjórnmál og er nú þessa daga að upp-
skera hatrömm pólitísk stríðsátök, sem engin sér  fyrir enda
á.

   Jóhanna byrjaði forsætisráðherraferilinn á að kljúfa þjóðina
í herðar niður, í tvær hatrammar fylkingar. Þegar hún með
bolabrögðum fékk Alþingi að samþykkja umsókn að ESB, sem
svo reyndist AÐLÖGUN að ESB.  ENGINN ANNAR stjórnmála-
maður hefur vegið eins meiriháttar að sjálfstæði Íslands frá
fullveldistöku 1918 og þessi Jóhanna. Gantaðist svo  með
fæðingastað þjóðfrelsishetju Íslendinga 17 júní 2010. -

  Þá klauf Jóhanna þjóðina í tvær hatrammar fylkingar, þegar
hún ásamt sínu fámenna landsöluliði hugðist hneppa þjóðina
í ólögvarðar Icesave-skuldadrápsklyfjar, er hefði leitt til alls-
herjar þjóðargjaldþrots í dag. Eymd, volæði  og  fátækt  yfir
almenning um ófyrirséða tíð. Allt í þágu erlendra afla! Þökk
sé forseta vorum og þjóðinni að koma í veg fyrir það!

  Í dag er Alþingi í allsherjarupplausn og átökum í hverju
stórmálinu á fætur öðru þar sem þessi Jóhanna ætlar  að
valtra yfir allt og alla, allt til að koma sínum andþjóðlegu
viðhorfum og ætlunum í verk. Jafnvel stórt landsvæði á
stærð við Möltu skal koma yfir erlend yfirráð, og það til
kommúnistastjórnarinnar í Kína.  Hin sósíaldemókrata-
íska landsöluhyggja Jóhönnu Sigurðardóttir virðist engin
takmörk sett! ENGIN!

   Jóhanna Sigurðardóttir kýs svo sannarlega átök og upp-
sker viðeigandi stríð. Já og það hatramt stríð þar sem bar-
ist verður um sjálfstæði og fullveldi Íslands. Þar sem ALLIR
þjóðfrelsissinnar og þjóðhyggjufólk mun berjast af ALEFLI
uns landssöluliður Jóhönnu Sigurðardóttir hefur verið
GJÖRSIGRAÐUR!

   ÁFRAM FRJÁLST OG FULLVALDA ÍSLAND 
  
   www.xg.is  www.afram-island.is

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Svo sannarlega hefur þessi aumkunarverða manneskja klofið þjóðina í tvær andstæðar fylkingar með dyggri aðstoð Steingríms og Össurar.  Það sér hvert smábarn.  Vonandi tekst okkur að kveða þetta óheilla ESBmál í kútinn fyrr en seinna.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.5.2012 kl. 09:44

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Okkur mun takast það Ásthildur!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.5.2012 kl. 21:54

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vil svo gjarnan trúa því Guðmundur minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.5.2012 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband