HÆGRI GRÆNIR nei við Nubo! Ekki Sjálfstæðisflokkurinn!


   Alltaf kemur betur og betur í ljós munurinn á HÆGRI GRÆNUM
og hinum sósíaldemókrataíska Sjálfstæðisflokki. Þegar formaður
HÆGRI GRÆNNA tekur undir varnaðarorð fyrrv. sendiherra Einars
Ben varðandi  áform erindreka kínverska Kommúnistaflokksins um
að fara kringum íslenzk lög og yfirtaka 300km2 af Íslandi, þá skuli
þingmenn Sjálfstæðisflokksins með þingflokksformanninn í broddi
fylkingar annað hvort lýsa stuðningi við landssöluna eða þegja yfir
henni. Sama með Framsókn.  En formaður HÆGRI GRÆNNA hefur
sagt þessi áform skandal sem ekki ætti að líðast. (sbr. heimasíða
hans á facebook). 

  Enn ein vísbendingin um að Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin,
Hrunflokkarnir tveir, stefni á enn eitt ríkisstjórnarsamstarfið eftir
kosningar. -  Sem  kallar  á enn  meiri  þörf  á að  öflugt þjóðhollt
borgaralegt afl eins og HÆGRI GRÆNIR  myndist á hægri kanti
íslenzkra stjórnmála........ 

   www.xg.is  www.afram-island-is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Allavega ef Sjálfstæðisflokkurinn skiptir ekki um kúrs og formann þá mun HG hirða stóran hluta af fylgi Sjálfstæðisflokksins og einnig óráðnu kjósendurna, Sjálfstðæðismenn munu ekki átta sig á þessu fyrr en það er orðið um seinan fyrir þá með Bjarna Ben í formannssæti, það er alveg ótrúlegt að stjórnarandstaðan skuli ekki vera að skora miklu hærra í skoðanakönnunum á móti óvinsælustu ríkisstjórn allra tíma.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 10.5.2012 kl. 07:41

2 identicon

Það er vert að bæta bæta því við að millistéttin er hryggjarstykkið í hverju þjóðfélagi fjölmenn og öflug, Hún er algerlega borin fyrir borð af fjórflokknum, en HG er spennandi valkostur fyrir hana.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 10.5.2012 kl. 07:43

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jú Kristján ætla má að stór hluti óánægðra sjálfstæðismanni styðji HÆGRI
GRÆNA. Enda eini sanni hægriflokkurinn frá tíma gamla Íhaldsflokksins.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.5.2012 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband