Hreyfingin útibú Samfylkingar! Dögun dagar uppi!


   Nú liggur alveg ljóst fyrir að Hreyfingin er ekkert annað en
útibú Samfylkingarinnar. Og DÖGUN mun daga þar uppi sem
aðildarfélag þar á bæ.

   Í raun kemur þetta ekki á óvart! Sterk sósíaldemókrataísk
viðhorf hafa ætíð grasserað innan Hreyfingarinnar. Spurning
bara um hvenær hún kæmi út úr skápnum.

  Þannig hefur Hreyfingin leynt og ljóst stutt aðildina að ESB.
Studdi breytingu á stjórnarráðinu að kröfu ESB. Og ætlar
svo að styðja breytingu á stjórnarskránni varðandi fullveldis-
afsalið að kröfu ESB. 

   Vert er að óska kjósendum til hamingju, einkum stuðnings-
fólki DÖGUNAR, að fá að sjá þau Þór Saari, Birgittu Jóns  og
Margréti Tryggva stíga nú fram úr skápi Samfylkingarinnar.
Og án þess að blikna!

   Alltaf gott þegar fólk stígur hreint fram! 

   Þótt fyrr hefði verið!
mbl.is Munu verja ríkisstjórnina vantrausti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrir utan utanríkismálaflokk Birgittu, þá hafði hún bein í nefinu í innanríkismálum. Færði okkur fréttir af "vinnu" þingmanna/kvenna. Oft alveg ótrúlegar fréttir.

Nú hefur Birgitta ekkert bein í nefinu lengur, búið að rúlla henni upp að vegg. Heyrist ekki múkk í henni. Nú er það Þór Saari sem fer fyrir helreiðinni. Þau eru algerlega búin að missa sig. Enginn kýs þetta fólk.....

Jóhanna (IP-tala skráð) 14.5.2012 kl. 17:20

2 identicon

Ef ég man rétt var Hreyfingin andsnúin Icesave samningnum.  Það er nú ekki beint merki um stuðning við ríkisstjórnina.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 14.5.2012 kl. 17:44

3 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Þeta er allt tómt andskotans blaður í þér Guðmundur ESB hefur ekki verið rætt innan Hreyfingarinnar og líklega er þar frekar lítill stuðningur við þessa umsókn og þú getur hvergi fundið og komið með ábendingar um að Hreyfingarþingmenn hafi greitt atkvæði gegn stefnuskrá Hreyfingarinnar til þess eins að verja ríkisstjórnina.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 14.5.2012 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband