Unga fólkið og STOPPIÐ í Silfri Egils.


   Það var átakanlegt að horfa á Silfur Egils í dag
þ.s fulltrúar stjórnarandstöðunnar opinberuðu
endanlega þá stöðnun og kreppu sem framundan
er komist vinstriflokkarnir til valda. Fulltrúi Íslands-
hreyfingarinnar skar sig þar ekki úr heldur þvert á
móti, eins og búiðst var við.

    Hugsaði til alls ungs fólks á Íslandi dag, þessa
kröftugu og menntuðu ungu Íslendinga sem aldrei
hafa kynnst kreppu, eymd og atvinnuleysi.  Það
hlýtur að hugsa til hryllings ef STOPP-flokkarnir
í stjórnarandstöðunni komist til valda í vor. Alveg
sérstaklega var átakanlegt að hlusta og horfa á
fulltrúa Vinstri-grænna. Að svona sósíalískt aftur-
hald og öfgar í umhverfismálum skuli enn vera
til á 21 öldinni á Íslandi er hreint með ólíkindum.
Enda er fylgi þeirra nú loks farið að dala. Aðeins
upphafið af meiriháttar fylgistapi þeirra.

    Ungt fólk á Íslandi er kröfugt og framfarasinnað
og vill áfram hagvöxt og hagsæld eins og verið
hefur s.l 12 ár.  Það vill land tækifæra en ekki þá
stöðnun og kreppu sem augljóslega tekur við í
vor ef STOPP-flokkarnir takist að fella núverandi
ríkisstjórn.




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Depill

Þrátt fyrir að ég sé nú einn af þessu "unga fólki" sem aldrei hefur upplifað kreppu, þá er ég líka einn af þeim sem helst vill sleppa við það að þurfa að upplifa hana. Þess vegna skil ég ekki þetta rosalega fylgi sem Vinstri-Grænir eru með, þessi stopp stefna þeirra og lögbundinn kynjakvóti finnst mér skelfileg hugmynd ( ásamt fleirri hugmyndum ).

Það er ekki það að ég vilji ekki jafnrétti, vill jafnrétti, en sé enga ástæðu fyrir því að ríkið eigi að fara skipta sér að því hverjir sitja í stjórn fyrirtækja, frekar á að gera mótandi fyrirmyndir fyrir fyrirtæki og reyna breyta hugsunarhætti.

Úff, ég vakna oft sveittur á nóttinni úr hryllingsdraumunum með Vinstri-Græn í ríkisstjórn.

Depill, 25.3.2007 kl. 16:02

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég hef mestar áhyggjur af því, að þú leggir trúnað á þessa endemis þvælu í þér. Það mætti halda, að þið framsóknaríhöldin, séuð farin að trúa því, að öllu verði endanlega lokið, ef þið fáið ekki að virkja allar sprænur landsins til að framleiða og selja álfabrikkum rafmagn á smánarprís.

Jóhannes Ragnarsson, 25.3.2007 kl. 16:08

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jóhannes minn. Hugsaðu þér bara eitt. Hvernig ríkissjóður stæði í
dag ef þið sósíalaistarnir hefðu ráðið s.l 12 ár. Þá hefði t.d
ríkissjóður ALLRA landsmanna orðið af HUNDRUÐUM MILLJÖRÐUM
vegna sölu ríkisfyrirtækja. Og þessi  sami sjóður OKKAR ALLRA
landsmanna væri ekki að fá ÁRLEGA TUG-MILLJARÐA í skatta af
þessum sömu fyrirtækjum. Hugsaðu þér bara velferðarkerfi okkar í
dag t.d ef þetta hefði ekki komið til.  Já EF þið  sósíalistarnir 
hefðu ráðið. Svo nú boðið þið EITT STÓRT STOPP í dag hvað
varðar nýtingu auðlinda á skynsaman hátt. Þú fyrirgefur.
Þetta eru bara BLÁKALDAR staðreyndir sem liggja fyrir. Hefur
EKKERT með neina trú að gera.... Hér væri meyriháttar EYMD og
VOLÆÐI ef VG og vinstriflokkar hefðu stjórnað s.l 12 ár.
Það er bara þannig!  Því miður fyrir ykkur!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 25.3.2007 kl. 16:34

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ja, mikil er trú ykkar framsóknarmanna. Það er ekki að undra þó þið botnið lítið í fylgishruninu hjá ykkur.

Jóhannes Ragnarsson, 25.3.2007 kl. 17:15

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Get nú ekki alveg séð hvernig menn setja samasem merki milli álvera og hugsanlega stöðvun á uppbyggingu þeirra saman við stöðnun hér á land. Álver eru byggð af erlendum aðilum fyrir erlent fjármagn og hagnaðurinn fer erlendis. Þeir flytja hingað inn súrál fá hér orku til að umbreita þvi í annað form og flytja það svo út aftur. Hagnaður sem við fáum af þeim er vinna fyrir hva eitthvað innan við 2000 manns sem og einhver afleidd störf. Vöxtur hér hjá okkur hefur verið í kjölfar opnunar á mörkuðum í kjölfar EES.

Mér sýnist að fólk sé að leggja áherslu á að byggja upp fjölbreyttari atvinnuvegi. Enda ekki drauma störf allra að vinna í verksmiðjum.

Magnús Helgi Björgvinsson, 25.3.2007 kl. 17:26

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jóhannes. Engin rök, enda væri ríkissjóður skuldum vafinn og
fyrirtæki og einstaklingar skattpínd inn að skinni ef sósíalismi VG
hefði ráðið för.

 Magnús. Að sjálfsögðu mælist allur útflutningur af áli 100% inn í
okkar útflutnings- og þjóðatekjur og hefur því meiriháttar áfrif
á viðskiptahallann. Auk þess fær ríkið beinar tekjur af starfseminni
og annara mikilla margfeldisáhrifa.

  Það hafa aðeins 2 álver verið byggð á 36 árum og það þriðja
er í byggingu. Það eru nú öll ósköpin. Svo hitt. Enginn flytur
1  stk álver af landinu eftir að það hefur verið byggt. Það er
hægt með allar okkar sterku fjármálastofnanir ef einhverjir
afdánkaðir og misvitrir sósíalistar td úr VG vilja það, eins og 
sumir hafa hótað.

  Enginn er að tala um álversæði. Heldur að nýta okkar aulindir
skynsamlega. Tel á næstu árum sé nægilegt að stækka álverið
í Straumsvík og leyfa Húsvíkingum að byggja sitt álver.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 25.3.2007 kl. 20:01

7 Smámynd: Helga Sigrún Harðardóttir

Guðmundur. Ég tel mig enn meðal yngri kynslóðarinnar, þó það sé nú nokkuð síðan ég fermdist. Sjálf hef ég því haft það býsna gott. Ég er hins vegar svo heppin að hafa fengið að sjá ýmislegt um ævina og þó ég hafi ekki sjálf upplifað eymd, fátækt og hörmungar, þá veit ég að foreldrar mínir, að ekki sé talað um ömmur og afa höfðu einungis lítið brot af því sem við höfum í dag. Sultur og seyra var daglegt brauð og það eru eingöngu örfá ár síðan.  Ég veit líka vel hvers vegna ég valdi að vinna með Framsókn. Þar sjáum við hlutina í öllum regnbogans litum og höldum ekki að við þurfum að velja á milli virkjana og ferðaþjónustu eins og aðrir hafa haldið fram. Þetta getur nefnilega farið mjög vel saman. 

Helga Sigrún Harðardóttir, 26.3.2007 kl. 10:26

8 Smámynd: Auðun Gíslason

Einkennilegt að þessi væntanlega kreppa kemur ekki fram í hagspám, sem ekki gera ráð fyrir frekari stóriðjuframkvæmdum, sbr. Greiningardeild Glitnis. Megir þú hressast af kreppusóttinni!

Auðun Gíslason, 26.3.2007 kl. 15:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband