Framsókn á uppleið.- Ríkisstjórnarsinnar fagna.


    Skv. tveim skoðanakönnunum í dag virðist fylgið
við Framsókn á uppleið miðað við síðustu kannanir.
Fyrir okkur sem viljum núverandi ríkisstjórn áfram er
þetta fagnaðarefni. Því það er alveg ljóst, að til þess
að núverandi ríkisstjórn sitji áfram verður Framsóknar-
flokkurinn að fá verulegt meira fylgi heldur en það
sem hann hefur að vera að mælast í að undanförnu.

   Núverandi stjórnarsamstarf hefur verið mjög gott
og farsælt þau 12 ár sem það hefur staðið.  Fram-
sóknarnarflokkur er elsti flokkur landsins og Sjálfstæðis-
flokkur sá næst elsti. Báðir þessir flokkar lífðu af síðustu
öld, þrátt fyrir allskyns byltingar og pólitísk umbrot,
meir en hægt er að segja um alla aðra flokka.  Því
var það táknrænt að þessir  tveir rótgrónu flokkar
skyldu saman leiða hina íslenzku þjóð inn í 21 öldina.
Langlifi þessara flokka hlýtur m.a að vera til vitnis um
að þeir hafa ætið starfað í takt við hina íslenzku þjóð-
arsál. Þess vegna vill meirihluti kjósenda þessa ríkis-
stjórn áfram.

    Nú eru 17 dagar til kosninga. Enn geta  margir
hlutir gerst. Vonandi ríkisstjórnarflokkunum báðum
til heilla....
   

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gylfi Björgvinsson

Já  auðvitað  verður  sama  stjórn  Guðmundurað  kosningum  loknum   Guð  hjálpi  okkur  annars. Framsóknarflokkurinn er að  eflast í  þessum  könnunum  eins  og þú  nefnir  og  það  bara verður  að halda  áfram

Gylfi Björgvinsson, 25.4.2007 kl. 20:58

2 Smámynd: Auðun Gíslason

Ææææææ

Auðun Gíslason, 25.4.2007 kl. 22:24

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Auðun. Dæmigert rökleysiþrot vinstrisinna. Ææææ bla  bla  bla!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 26.4.2007 kl. 00:08

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Framsókn ekki með þingmann í annarri könnuninni í Reykjavík og missir 2 á NA það má nú ýmislegt lagast til að þið getið mannað ráðuneyti ef að stjórninn heldur velli. Þannig að í þessum könnunum er framsókn með 1 þingmann þar sem hún hafði 4 áður, mér finnst það nú ekki lofa góðu.

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.4.2007 kl. 00:41

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús minn. Vísa í bloggsíðu Björns Inga sem sýnir að Framsókn
er í mikilli sókn í dag skv þessum könnunum í dag og þeim síðustu.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 26.4.2007 kl. 01:02

6 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Framsókn má þakka fyrir ef þeir fá 1 kjördæmakjörinn þingmann miðað við síðustu uppákomurnar í flokknum hjá Jóni Sigurðssyni og Jónínu Bjartmaz. 

Jakob Falur Kristinsson, 27.4.2007 kl. 10:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband