Hægri grænir móti viðskiptaþvingunum

Mikil ólga er nú meðal aðila í sjávarútvegi
og fjölda annarra, vegna þátttöku Íslands í
viðskiptaþvingunum  ESB  gegn  helstu við-
skipta- og vinaþjóð okkar,  Rússum.

Alveg sérstaklega gremst mörgum og skilja 
alls ekki þátttöku Íslands, þar sem Ísland
er utan ESB, og að íslenska þjóðarbúið mun
uppskera a.m.k tuttugu sinnum þyngri búsif-
jar en öll hin ríkin sem standa að þessum
vafasömu þvingunum. Engin þjóð verður fyrir
jafn alvarlegri lífskjaraskerðingu og Ís-
lendingar. Sem er jú gjörsamlega óásættan-
legt, hvernig sem á það er litið !

Sorglegast er þó að horfa upp á hversu 
óundirbúin íslensk stjórnvöld voru gagnvart
afleðingum þessara  þvingana. Bæði pólitísk
og efnahagslega. Utanríkisráðuneytið hefur
gjörsamlega brugðist í máli þessu, og sem
pólitískur ábyrgðaraðili ber utanríkisráð-
herra að víkja þegar í stað, vegna vítaverða
afglapa í starfi. Algjör vanræksla þar sem 
gríðarlegir þjóðarhagsmunir eru í húfi, er
einfaldlega ekki hægt að líða! Þess vegna 
ber utanríkisráðherra og ráðuneytisstjóri
hans að víkja! Strax!

Athyglisverðast er þó að horfa upp á hvernig
stjórnmálin á Íslandi togast á þvers og kruss
í stórmáli þessu. Einkum hvernig ESB-sinnar
taka útþenslustefnu ESB í Evrópu fram yfir
borðliggjandi þjóðarhagsmuni Íslands, sem
minnir nöturlega á Icesave-undirlægjuháttinn.

Aðeins einn stjórnmálaflokkur virðist hafa 
haft djörfung og dug að mótmæla og álykta
meðvirknisþátttöku Íslands gegn sjálfu sér!
HÆGRI GRÆNIR! Sem segir jú margt átakanlegt
um íslensk stjórnmál í dag!


mbl.is Markmiðið að samræma aðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband