Viðskiptaráðherra vanhæfur


    Það er alveg með ólíkindum að sjálfur viðskiptaráðherrann
í ríkisstjórn Íslands skuli reyna sem mest að tala niður gjald-
miðil þjóðarinnar á sama tíma og mikil óvissa hefur verið á
peninga- og gjaldeysismörkuðum heims. Hvergi yrði það liðið
á byggðu bóli að ráðherra í ríkisstjórn talaði eins og Björgvin
G Sigurðsson gerði  á stöð 2 í gærkvöldi. Sagði íslenzka gjald-
miðilinn enga framtíð eiga fyrir sér, hefði enga trú á honum,
og allt í þeim dúr. Þvert á móti er það skylda allra ríkisstjórna,
þegar jafn mikil óvissa ríkir í peningamálum heimsins, að reyna
að standa vörð um sína heimamarkaði, að tala fyrir áframhald-
andi tiltrú aðila á gjaldmiðli viðkomandi ríkis og þeim markaði
sem hann stendur fyrir. Framferði ráðherra er því  með eindæm-
um, og hefur hann algjörlega opinberað vanhæfi sitt sem við-
skiptaráðherra í ríkisstjórn Íslands.

   Annars kemur framferði þessa ráðherra ekki svo á óvart
lengur. Fyrr í sumar þótti þessum sama ráðherra ekkert sjálf-
sagðara en að sækja flokksþing erlends stjórnmálaflokks.
Raðherra í ríkisstjórn Íslands á flokksþingi erlends stjórnmála-
flokks. - Viss landamæraskil og þjóðlegir hagsmunir virðast
þessum ráðherra vera  mjög framandi, sem gerir hann að
vanhæfum ráðherra.............



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég hef líka furðað mig á þessum stöðugu heimsóknum Björgvins til Blairs sem hann dáir mjög. Heimsóknirnar fóru fram á sama tíma og Samfylkingin gagnrýndi réttilega harðlega innrásina í Írak og vildi láta minni peð sum hver stödd hér uppi á Íslandi axla ábyrgð.

Sigurjón Þórðarson, 21.8.2007 kl. 17:18

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Það er eins og Björgvin átti sig ekki á ráðherraábyrgðinni. Sem
RÁHERRA þverbraut hann allar hefðir að sækja flokksþing breskra
krata í sumar. Hefi breskur ráðherra sótt flokksþing íslenzks
stjórnmálaflokks yrði litið það sem grófa íhlutun í íslenzk innanríkismál. Það er eins og kratanir átti sig ekki á þessum hlutum
enda öfgafullir alþjóðasinnar. Þar að auki var Björgvin að heiðra
Blair, aðal gerandan í Íraksstríðinu, með komu sinni æa flokksþingið.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 21.8.2007 kl. 21:26

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Byrjar þetta með íhlutun í íslensk /bresk innanríkismál. Þú varst með sama söngin síðast vor þegar að ráðherrar frá norðulöndum sóttu flokksþing Samfylkingarinnar. Það að sækja þing einshvers flokk erlendis eru ekki afskipti af innanríkismálum. Það væri helst að það væri afskipti af innanflokksmálum.  Og gjaldmiðill sem sveiflast á nokkrum vikum um 10 til 15% er auðvita ekki boðlegur því hann bitnar helst á launafólki þar sem að fyrirtæki og þeir ríku eru löngu farnir að nota annan gjaldmiðil. Nema í launagreiðslur hér heima.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.8.2007 kl. 22:52

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Það gildir allt annað um RÁÐHERRA að sækja flokksþing
erlendis en óbreyttan stjórnmálamann. En þið kratar eru svo
öfgafullir í alþjóðahyggju ykkar að þið skiljið það ekki, enda vilduð
þið fresta lýðveldisstofnunni 1944 og vilja afsala fullveldi og sjálfstæði Íslands í dag til Brussels. Sama um afstöðu ykkar til
hins íslenzka gjaldmiðils, hann hefur ekkert verið meira flöktandi en allt flokktið sem búið er að vera á erlendum peningamörkuðum að undanförnu. Þess vegna eru ummæli viðskiptaráðherra vítaverð og hann á að segja af sér þegar í stað ! Hann er algjörlega
vanhæfur að gegna íslenzku ráðherraembætt.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.8.2007 kl. 08:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband