Munu sjálfstæðismenn lúffa í olíuhreinsunarmálinu ?


   Samfylkingin hefur nú endanlega útilokað byggingu
olíuhreinsunarstöðvar á Íslandi. Fundur umhverfisráð-
herra með fulltrúum Íslensks háttækniiðnaðar og verk-
fræðifyrirtækisins Línuhönnunar leiddi það berlega í ljós
í gær. Raunar kemur þetta ekki á óvart, því iðnaðar-
ráðherra hefur margoft séð öll tormerki á því að af
þessari framkvæmd verði. Spurningin er því sú, hver
sé afstaða sjálfstæðismanna í þessu máli, og hvort
þeir lúffi fyrir Samfylkingunni í máli þessu eins og í svo
mörgum öðrum málum sem til þjóðarheilla horfir?

   Tvískinningur í málflutningi krata í málinu  er með
eindæmum. Á sama tíma sem iðnaðarráðherra segist
ætla að gefa út leyfi til olíuleitar fyrir Norðurlandi á næsta
ári, væntanlega til að finna hana og vinna, má hins vegar
ekki hreinsa hana. Bara í þessu er meiriháttar ósamræmi
í málflutningi. Þá hefur komið fram að ekkert í Kyoto-sam-
komulaginu aftrar byggingu slíks iðnaðar, auk þess sem
sérstök tilskipunun Evrópusambandsins um slíkan iðnað
styrkir tilvíst hans frekar en hitt. Þá má benda á að ekki
hefði orðið af byggingu álvers fyrir austan ef fyrrverandi
ríkisstjórn hefði ekki beitt sér fyrir sértöku ákvæði í Kyoto-
samkomulaginu hvað varðar Ísland um nýtingu hreinnar
orku til iðnaðar. Ljóst er hins vegar að Samfylkingin ætlar
að túlka allar lagaheimildir og ákvæði mjög þröngt til að
koma í veg fyrir áframhaldandi stóriðnað á Íslandi. Innan
Samfylkingarinnar eru öfgafull öfl í umhverfismálum eins
og innan Vinstri-grænna, sem hika ekki við að beita öllum
ráðum til að koma í veg fyrir skynsamlega nýtingu auðlinda
og uppbyggingu atvinnulífsins, þjóðinni til heila.

   Stóra spurningin er því sú, hversu dýru verði eru sjálf-
stæðismenn tilbúnir til að greiða fyrir áframhaldandi ríkis-
stjórnarsamstarf með krötum, sem verður það atfturhalds-
samasta á lýðveldistímanum ef fram heldur sem horfir?
Hversu sterk reynist hin nýja flokksforysta Sjálfstæðis-
flokksins í sósíaldemókratiskri  þjókun sinni ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Samt er þetta allt inn í myndinni. Auk þess fengist meiriháttar reynsla
af þessari olíuhreinsun ef við færum að vinna olíu í stórum stíl
fyrir norðan. Því þar þarf að hreinsa hana, ekki satt ? Þannig alt er nú þetta ansi fátækleg rök Baldur R......

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 26.8.2007 kl. 18:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband