Mun Brusselvaldið þverbrjóta sín eigin grunnlög og reglur ?


   Í núgildandi lögum ESB er skýrt kveðið á um það, að í tilteknum veigamiklum
málum er varðar t.d breytingar á stjórnkerfisuppbyggingu sambandsins verða 
ÖLL aðildaríki að samþykkja þær. Neiti eitt aðildarríki, ganga breytingar ekki
fram. Gildir þá einu hvort sem þjóðþing viðkomandi ríkis afgreiðir breytinga-
tillöguna eða  þjóðaratkvæðagreiðsla í viðkomandi ríki.

  Því er það aldeildis furðulegt sem nú  heyrist frá helstu forkólfum  ESB, að þrátt
fyrir skýra neintun Íra við svokölluðum Lissabon-sáttmála, þá muni engu að síður
stjórnarskrárferlið halda áfram!  Hvernig í ósköpunum má það vera þegar skýrt
og klárt er kveðið á í núverandi stofnsáttmála ESB að samþykki ALLRA ríkja þurfi
til svo að jafn miklar grunnbreytingar á stjórnkerfi ESB og felst í Lissabon-sáttmál-
anum  nái fram að ganga?  Er EKKERT að marka lög og reglur sambandsins? Fer
Brusselvaldið bara fram eins og því hentar hverju sinni í algjöru trássi við lög og
reglur sambandsins? Valtrar bara yfir allt og alla þegar því er að skípta!  Hvernig
myndi smá örríki eins og Ísland reiða af í slíku Sovét-kerfi ?

   Því verður alls ekki trúað að Brusselvaldið komist upp með það að lúta ekki lögum
og reglum síns eigin grunnkerfis, og viðurkenni neitun írsku þjóðarinnar. Nóg er
samt að hafa komið því þannig í kring að engin þjóð innan ESB utan Íra fékk að
segja áliti sit á þessum miklu stjórnkerfisbreytingum sambandsins í lýðræðislegri þjóðaratkvæðagreiðslu.

  Uppreisn Íra gegn Brusselvaldinu er meiriháttar. Virðast búnir að fá nóg af mið-
stýringaáráttu þess verandi undir stjórn þess allt frá árinu 1973. Uppreisn Íra er
því upphafið að endalokum ESB líkt og fór fyrir hinu miðstýrða ,,sæluríki" kommún-
ista, Sovétríkjunum, þar sem lýðræðið var fótum troðið og engar leikreglur virtar
eins og nú virðist vera að gerast í Evrópusambandinu.

   Hérlendir kommúnistar sungu í denn ,,Sovét-Ísland hvenær kemur þú?
   Það kom ALDREI!

   Hérlendir ESB-sinnar ákalla nú ,,ESB-Ísland, hvenær kemur þú?
   Það mun heldur  ALDREI koma!
  
  ALDREI !!!
       

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband