Mjög óábyrg og hættuleg ummæli !


    Það er bæði í senn hættuleg og óábyrg ummæli þegar dósent við
Háskóla Íslands lætur þau alvarlegu orð falla í  hádeginu  á  RÚV  í
dag, að bankarnir íslenzku og fjölda fyrirtækja á Íslandi séu í reynd
gjaldþrota. Hverra  erinda er  þessi  dósent  að  ganga með  svona 
gífuryrðum? Svona talar maður ekki sem dósent við H.Í eins og Gylfi
Magnússon gerði við RÚV. - Allra síst þegar allir þurfa að tala kjark
í hvern annan, og standa saman sem einn maður, í því að finna og
vinna að lausnum á þeim efnahagsvanda sem hin íslenzka  þjóð
stendur nú  frammi  fyrir, eins og raunar alflestar þjóðir gera í dag.
Að allt sé komið á heljarþröm er út í hött að  fullyrða, og gerir ekkert
annað en magna upp vandan á þessari stundu.

   Íslennzk þjóð á bjarta framtíð fyrir sér, enda tækifærin mörg og
auðlindirnar ríkar sem þjóðin á. Þótt á bátinn gefi nú um stundar-
sakir er mikilvægt að þjóðin rói í takt út úr tímabundnum erfiðleikum.
Það mun hún gera í því samstilllta átaki sem nú er í gangi á öllum
vígstöðum. - Því að sjálfsögðu eru allir að reyna að gera sitt besta
við þessar aðstæður...
mbl.is Davíð: Menn tali varlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rannveig H

Gylfi Magnússo hefur hingað til verið og er mjög ábyrgur hagfræðingur.Gylfi er marg búin að benda á vandan og hvað hefur forsætisráðherra sagt? Geir hefur fullyrt eikki bara einu sinni heldur oftar að það væri ekkert að og logið að okku í beinni ann mann ættir þú að kalla óábyrgan.

Rannveig H, 3.10.2008 kl. 13:59

2 Smámynd: Rannveig H

ann ,Þann ekki okkur sorry ég hef verið einkað æst þegar ég skrifaði.

Rannveig H, 3.10.2008 kl. 14:02

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Rannveg. Svona lætur ENGINN ábyrgur maður út úr sér eins og dósentinn
Gylfi Magnússon. Þetta heitir á mannamáli að tala og vinna gegn þjóðlegum
hagsmunum Íslendinga á ögurstundu. Því svona bölbænir eru fljótar að
berast á erlenda peningamarkaði og virka þar eins og olía á eld . Það sem
okkur vantar er TILTRÚ á okkar hagkerfi sem í dag er mjög sterkt. En það er
hægt að tala allt niður og til andskotans ef vilji er til þess eins og hjá þessum makalausa óábyrga dósent!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.10.2008 kl. 15:03

4 identicon

Rannveig: Hafi það farið fram hjá þér þá stjórnast markaðir þessa stundina af ofsahræðslu. Ef forsætisráðherra lýðveldisins segir að hér stefni í óefni þá rætist sá spádómur undir eins. Geir veriður að reyna að tala upp gengi Íslands eins og hann getur. Ef þessi hagfræðingur getur ekki sagt eitthvað sem hjálpar til þá á hann að sjá sóma sinn í að bíða með að tjá sig þar til hlutirnir róast.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband