Jón hættur. Guðjón, hættu líka !


   Jón Magnússon er hættur í Frjálslyndum. Var þar þingflokksformaður.
Hef aldrei skilið þátttöku Jóns í Frjálslyndum, eins miklan ESB-sinna og
hann er. - Næst hlýtur að vera komið að formanninum sjálfum að hætta.
Skipstjóri sem ALDREI fiskar, ekki einu sinni bröndu, á þegar í stað að
taka pokann sinn og fara í land. Manna best ætti Guðjón A Kristjánsson
að skilja það. - Það hljóta því ALLIR að ganga út frá því. Annað væri
ALGJÖRT pólitískt harakíri fyrir flokkinn. 

  Hjá Frjálslyndum hlýtur þvi að blasa við allsherjar uppstokkun með
nýrri pólitískri ímynd.  Eins og hvarvetna er krafist í íslenzkum stjórn-
málum í dag. Endurnýjun og uppstokkun. Tími karlaveldis óeiningar er
því  liðinn hjá Frjálslyndum. Tími kvenna er þar kominn. Tvær hæfi-
leikaríkar konur hafa boðið sig þar fram til forystu. Þær Guðrún María
Óskarsdóttir og Ásgerður Flosadóttir. Frjálslyndir undir slíkri forystu
væri allir vegir færir.

   Flokkur á ÞJÓÐLEGUM borgaralegum grunni sem er stikkfrí við allt
efnahagshrunið og spillinguna ætti undir eðlilegum kringumstæðum
að sópa til sín mið/hægra fylgið.

   Glæsilegt og fjölmennt flokksþing í Reykjavík í mars kjósandi konur
til forystu, og endurnýjunar á öllu þingliðinu yrði upphafið að stórs
sigri flokksins í komandi kosningum.

  
mbl.is Segir sig úr Frjálslynda flokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

"Glæsilegt og fjölmennt flokksþing í Reykjavík í mars kjósandi konur
til forystu, og endurnýjunar á öllu þingliðinu yrði upphafið að stórs
sigri flokksins í komandi kosningum."

en er kannski ekki líkur á að það verði lítill fundur á Ísafirði þar sem núverandi formaðurinn verður klappaður upp?

En er Sleggjan farinn úr Frjálslyndum og hvert mun hann fara þá?

Fannar frá Rifi, 10.2.2009 kl. 01:17

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Fullkomin réttmæt athugasemd hjá þér Fannar. En hver verður niðurstaða
Landsfundar Sjálfstæðisflokksins í ljósi skrifa Ritstjóra Morgunblaðsins um
t.d Evrópumálin að undanförnu?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.2.2009 kl. 01:24

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Fannar. Treystir þú t.d Bjarna Ben í Evrópumálum? Hver er munur á hans
skoðunum í Evrópumálum og t.d ritstjóra Morgunblaðsins?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.2.2009 kl. 01:28

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Ég treysti Bjarna Ben EKKI hænufeti í Evrópumálum miðað við hans yfirlýsingar!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.2.2009 kl. 01:32

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Guðmundur af því þú ert að segja að frjálslyndir hafi verið stikkfrí þá kíkti ég á stefnuskrá þeirra sem er á netinu. Í kaflanum um alþjóðaviðskipti stendur:

Tækniþekking okkar og reynsla af alþjóðaviðskiptum opnar möguleika til aukinnaalþjóðaviðskipta. Ísland á möguleika sem alþjóðleg fjármálamiðstöð svo og frumkvæði í þróun á nýjum orkugjafa eins og vetni. Mikil alþjóðatenging, útrásfyrirtækja og einstaklinga og góðar samgöngur opna tækifæri til að nota sérþekkinguokkar til útflutnings.

Þannig að þeir voru með sömu drauma og markmið eins og aðrir.

Magnús Helgi Björgvinsson, 10.2.2009 kl. 01:53

6 Smámynd: Fannar frá Rifi

ég mun ekki kjósa neinn  sem ekki lýsir yfir skilyrðislausri andstöðu við ESB aðild.

Fannar frá Rifi, 10.2.2009 kl. 12:35

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Gott Fannar.  Sama hér! Kannski lendum við í sama flokknum fyrir rest!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.2.2009 kl. 21:56

8 Smámynd: Fannar frá Rifi

ég ætla að setja smá spá hérna hjá þér.

Ég spái því að það verði kosið aftur til Alþingis, í síðastalagi 2011.  

Fannar frá Rifi, 10.2.2009 kl. 23:29

9 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Athyglisvert Fannar. Alls ekki ótrúlegt. Ætla að festa það á minnið! 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.2.2009 kl. 00:12

10 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Hvaða flokk Guðmundur sem stendur er það bara VG og ég hika ekki við að lýsa yfir opinberlega að ég kýs ekki VG. Allir aðrir flokkar eru að kíkja undir pilsfaldinn hjá evróðu maddömunni

Jón Aðalsteinn Jónsson, 11.2.2009 kl. 22:32

11 Smámynd: Fannar frá Rifi

Eru VG ekki að dansa með Samfylkingunni ESB dansins? annað verður ekki skilið á máli Össurar og sú umræða sem er í gangi hjá ríkistjórninni um breytingar á stjórnarskrá Íslands.

Fannar frá Rifi, 12.2.2009 kl. 14:46

12 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jón. And-þjóðleg er Samfylkingin en alls ekki eru hinir alþjóðasinnuðu
kommúnistar í VG betri. VG hefur þegar svikið í Evrópumálunum, og
ætlar að hjálpa Samfylkingunni að breyta þannig stjórnarskránni að
fullveldisafsalið verður ekki hindrun í því að troða Íslandi inn í ESB.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.2.2009 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband