Eva Joly veittur ALLUR stuðningur !


   Krafa íslenzkrar þjóðar er að bankahrunið verið rannsakað AÐ
FULLU, og ENGU til sparað. Að mafíósanir ALLIR verði látnir svara
til saka, eignir þeirra gerðar upptækar, sem til saka hafa unnið,
og þeir sömu  látnir sæta fangelsi ævilangt.  Fyrr mun ALDREI
verða nein þjóðarsátt.

   Eva Joly á hrós skilið að hafa komið fram fyrir þjóðina í Kast-
ljósi í kvöld, með ákall um mun meiri kraft í eina mikilvægustu
rannsókn í Evrópu sem hún nefnir. Stjórnvöld meiga alls ekki
draga lappirnar í stórmáli þessu. - Þjóðin mun ALDREI þola
það ofan á allan þann skandall sem undan er genginn.

  SANNLEIKURINN VERÐUR AÐ KOMA Í LJÓS HVAÐ SEM ÞAÐ
KOSTAR!!!!!!!!!!!!

mbl.is Björn verður ríkissaksóknari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Eiríksson

Eva sagði það svo fallega að hún hefði ekki séð tilgang í að tala við ríkisstjórnina því hún hefði verið ráðin (með hangandi hendi) vegna kröfu frá þjóðinni.     Það er líklega alveg satt og því e.t.v. ekkert undrunarefni að ríkisstjórnin, eða í það minnsta fjármálaráðherra skuli ekki hafa haft samband við hana að fyrra bragði!!!!    Það hefði ég gert í sporum Steingríms því hann hlýtur að sjá það sem þjóðin sér að rannsóknin gengur ekkert, Valtýr er vanhæfur, Baldur er vanhæfur og svo er efalítið um marga fleiri!  Og Eva tók sérstaklega fram að hún vildi ekki sjá sérstakan ríkissaksóknara, hún vildi Valtý burt, en hvað skeður - Valtýr situr!     Skammarlegt!

Ragnar Eiríksson

Ragnar Eiríksson, 10.6.2009 kl. 21:12

2 identicon

EKki get ég sagt að það komi á óvart að ekki væri verið að vinna nógu ötullega að rannsókn á glæpagenginu.  Ekki verið að eyða nægu fjármagni fyrir nægilegan fjölda rannsakenda.  Eva Joly beinlínis lét fólkið í landinu vita í kvöld, fólkið sjálft, ekki yfirvöld, og það opinberlega.  Sagðist hafa viljað að við vissum það.  Og yfirvöld hafa vitað það síðan í apríl!? Og líka það að ríkissaksóknari væri vanhæfur vegna tenginga sonar hans við stærsta bankann.  Þó sat hann og sat!  Öll gífurlega vinnan á herðum nokkurra manna, 1/3 af stærð rannsakendahóps sem þarf lágmark samkvæmt Evu Joly.  Og einn vanhæfur í ofanálag.  Yfirvöld bara létu þetta flakka á meðan fókið í landinu beið milli vonar og ótta um niðurstöðu.

EE elle (IP-tala skráð) 10.6.2009 kl. 22:58

3 identicon

Ætlaði að láta slóðina með þarna inn:
Eva Joly, 10. júní, 09
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4470313/2009/06/10/

EE elle (IP-tala skráð) 10.6.2009 kl. 23:02

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þakka ykkur Ragnar og EE kærlega fyrir ykkar skoðanir hér sem ég er
innilega sammála...

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.6.2009 kl. 00:19

5 Smámynd: Ásta Steingerður Geirsdóttir

Tek allshugar undir það að Eva J fái ALLAN þann stuðning sem hún hefur tjáð sig um nú undangengna daga. VIÐ BARA VERÐUM að leggja til alla þá fjármuni sem þarf, við "þjóðin"höfum látið það svo berlega í ljós að fá ALLT upp á borðið. Það verður ekki fengið nema farið sé að ráðum þessara blessuðu konu. Ef ekki þá BURT með alla sem nú sitja á þingi og segjast vilja uppræta þessi mál. Látum í okkur heyra hvað þetta varðar. Sofnum ekki eins og við höfum svo oft gert. Þakka þér pistilinn :)

Ásta Steingerður Geirsdóttir, 11.6.2009 kl. 20:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband