Pútin saknar hiðs kommúniska Austur-Þýzkalands


   Furðulegt að  Vladimir  Putin, forsætisráðherra  Rússlands,
skuli segjast sakna  hiðs  kommúniska  Austur-Þýzkalands.
En  þar var stór hluti  Þjóðverja  hafur  í  fangabúðum komm-
únista í tugi ára. Hluti heillar þjóðar, undir járnhæl stjórnmála-
stefnu, sem sek er um að hafa sett heimsmet í fjöldamorðum,
auk annara þjóðaglæpa. Greinilegt er að Rússar hafa  engann
veginn gert upp kommúniska fortíð sína. Ummæli Pútins bera
þess greinilegs merki, ekki síst í hans stöðu í dag og sem fyrr-
verandi útsendara hinna illræmdu sovétsku KGB leyniþjónustu
 í Austur-Þýzkalandi.  

   Þá er einnig vert að minna á í tilefni falls Berlínarmúrsins að
enn hafa t.d Bretar og Bandaríkjamenn aldrei þurft að svara
fyrir stríðsglæpi sína í seinni heimsyrjöld. Má þar nefna kjarn-
orkuárásir Bandaríkjamanna á tvær borgir í japan, og hinar
hrottafengnu lofárásir Breta og Bandaríkjamanna á Dresden,
löngu eftir að þýzki herinn hafði í raun gefist upp.

   Vert er svo í lokin að óska Þjóðverjum til hamingju á þessum
tímamótum. Sameinað Þýzkaland á eftir að blómstra í fram-
tíðinni.  Land og þjóð sem við Íslendingar eigum að stórauka
okkar samskipti við.

   www.zumann.blog.is
 
mbl.is Putin saknar Austur-Þýskalands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas, æfinlega !

Öllu lakara var; að Vesturlönd höfðu ekki döngun í sér, til þess að koma á móti Sovétríkjunum, á sínum tíma - með ALGERRI uppskiptingu Þýzka lands (1945/49), líkt og verið hafði; lengst af 19. aldarinnar. Konungdæmi - Stór hertogadæmi - Furstadæmi og Erkibyskupa dæmi, svo mörg, að Þjóðverjar voru til friðs - lengstan hluta; þeirrar aldar, eins og við munum, Guðmundur minn.

Einnig; gleymi ég aldrei, því skjóli, sem Þjóðverjar veittu andskotanum Lenín, og Rauðliðum hans - og stuðluðu þar með, að ósigri bræðra minna, Hvítliða; í byltingunni í Rússlandi, Guðmundur minn.

Þannig að; marg- klofið Þýzkaland þýðir - ekkert Evrópusamband, til framtíðar litið, forni spjallvinur.

Hinn hlekkurinn - Frakkland; gæti aldrei borið það uppi, án hins (Þýzka lands).

Með beztu kveðjum; sem ætíð, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 8.11.2009 kl. 17:03

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Óskar minn. Það væri nú einkennilegt ef við værum alltaf sammmála
um allt. En við vitum, í bestri vinsemd, að þarna greinir okkur á.

Með bestu kveðju í Árnesþing!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 8.11.2009 kl. 17:09

3 identicon

Heill og sæll; á ný, Guðmundur minn !

Rétt er það; um þessi mál, mun okkur á greina, um all langa hríð.

En; það spillir aldrei, vinfengi okkar - það eru svo mörg önnur mál, um hver við höfum sameiginlegar niðurstöður - sem eindrægni; í hvívetna.

Með beztu kveðjum; sem áður og fyrri /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 8.11.2009 kl. 17:19

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Innilega sammála Óskar minn. Enda ber fulla virðingu fyrir þínni skoðun í
þessu, auk þess að bera mikla virðingu fyrir hinni rússneskri þjóð!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 8.11.2009 kl. 17:25

5 identicon

Ég ætla bara að benda að ég las viðtalið eins og það er birt á NTV og í útgáfu MBL er ýmsu sleppt eins t.d. að Putin finnist að fall múrsins hafi verið óumflýjanlegt og að í nútímaþjóðfélagi sé ekki hægt að halda fólki niðri eins og þar var gert. Einnig bendir Putin á að skipting Þýskalands hafi verið óeðlileg og að Austur-Þýskaland hafi ekki verið samkeppnishæft gagnvart frelsinu í vestrinu. Annars er viðtalið hér: http://www.n-tv.de/politik/Putin-ist-ostalgisch-article581150.html

P. Baldursson (IP-tala skráð) 8.11.2009 kl. 17:39

6 identicon

þetta er ekki alveg svona einfalt. og þetta er ekki svart og hvítt. það sakna markir DDR og ekki af ásæðulausu. Auðvitað var þessi stjórnun þarna skelfileg. ENN fólk hafði vinnu. ALLIR höfðu vinnu sem ekki voru í FRÍUM háskólum. það var engin ríkur þarna og frjáls skoðana skipti voru ekki leyfð.

Enn það var engin svangur og allir komust til læknis.

óli (IP-tala skráð) 8.11.2009 kl. 19:04

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Óli minn. Yfirstetinn, flokksgæðingarnir höfðu það gott, en almúginn ekki,
eins og í öllum öðrum kommúnistaríkjum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 8.11.2009 kl. 21:26

8 identicon

Ég er ekki að mæla Kommúnistum bót. Enn ég þekki fólk sem þarna bjó. Þetta var eki gott land að búa í ENN. það var engin svangur. Það var markt að og raunar flest. Enn þú gast farið í skóla og þó þú gætir ekki eignast BMW þá gastu fengið Trabant. Enn þetta skilja ekki allir auðvitað.

óli (IP-tala skráð) 8.11.2009 kl. 22:36

9 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Óli. Á tvöfaldann bílskur. Einn Volkswagenn er í honum. Trabant yrði wilkommen þar inn, ef ég ætti tækifæri á að eignast hann...

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.11.2009 kl. 00:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband