Engin þjóðarsátt um forsetann


    Engin þjóðarsátt virðist ríkja um forsetann, Ólaf Ragnar
Grímsson. Skv könnun Stöðvar 2 vill tæplega þriðjungur að
forseinn segi hreinlega af sér.

   Þetta kemur ekki á óvart. Margir telja hann samofinn svo-
kölluðum útrásarvíkingum, og því hruni sem þeir síðar ollu.
Sjálfur kaus  ég Ólaf aldrei, enda  fyrrverandi  leiðtogi  hér-
lendra sósíalista og róttækra vinstrisinna, sem aldrei kom
til að kjósa sem forseta íslenzka lýðveldisins.

   Ólafur er einn af þeim fjölmörgu af ráðamönnum þjóðar-
innar, eins og forsætisráðherra, og öðrum stjórnmála- og
embættismönnum, (þar með mörgum bankamönnum) sem
fyrir löngu hefðu átt að axla ábyrgð með afsögn. En það
er kannski til of mikils mælst, þegar helstu útrásarmafíu-
ósanir og mestu glæpamennirnir ganga enn lausir, eins og
ekkert hafi gerst, og lifa að auki margir í vellystingum prakt-
uglega.  Rúmu ári eftir hrun!

   Ekki skrítið þótt þorri þjóðarinnar sé farin að hugsa í hvers
konar aulaþjóðfélagi hún býr í eiginlega. Og það undir stjórn
vinstrimanna! Verndara útrásarglæpamanna sbr. icesave!

    www.zumann.blog.is

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það eru hlutfallslega fleiri sem vilja Ólaf núna en kusu hann upphaflega, sem þýðir að vinsældir hans hafa aukist!

stefan benediktsson (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 01:27

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Finnst nú ágætt miðað við allt að um 62% séu fylgjandi forsetanum  10% hlutlaus og aðeins 29% á móti. Þrátt fyrir allann áróðurinn sem hefur verið gegn honum. Segir sína sögu að þetta er minna en fylgi Sjálfstæðisflokksins í skoðunarkönnun núna. Þannig að það er rétt rúmlega fjórðungur á því að Ólafur eigi að víkja. Aðrir hafa áttað sig á að áróður manna um að hrunið sé forsetanum að kenna er nú andskoti langsótt enda embættið valdalaust.

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.11.2009 kl. 08:58

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Spurt var um hvort forsetinn ætti að segja af sér eða ekki. Ekki hvort
viðkomandi styddi hann, en  stutt er síðan að skoðanakönnun leiddi
í ljós ekki mikinn stuðning við hann.

Hlytur að vera áhyggjuefni fyrir forsetann hversu margir vilja hann frá nú
í dag. Enda sló Vísir.is því upp í gær segjandi frá þessari könnun að ENGIN ÞJÓÐARSÁTT UM FORSETANN, sem ég notaði líka sem fyrirsögn við pisli mínum.

En þú mátt alveg hafa þinn stuðning við forsetann Magnús minn eins og
við icesave-stjórnina og icesave-drottningu hennar.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.11.2009 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband