Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2011

Icesave-hræðsluáróðurinn skaut sjálfan sig !


   Andstæðingar Icesave-þjóðsvikanna eru nú í stórsókn
skv. skoðanakönnunum. Hinn öfgafulli hræðsluáróður og
hótanir Icesave-sinna er farinn að hafa þveröfug áhrif.
Fylgið hrynur af þeim, enda málstaður þeirra skelfilegur,
og þjónkun þeirra við erlenda nýlendukúgara og fjárglæf-
ramenn ömurlegur!!!!

  Næstu tveir sólarhringarnir munu ráða úrslitum. En að
þeim lokum mun hin íslenzka þjóð standa uppi knarrreist
með pálmann í höndunum. Horfandi mót bjartri íslenzkri
framtíð, sem sterk fullvalda og frjáls þjóð. Án neinna 
ólöglegra skuldadrápsklyfja fjárglæframafíuósa.

   Nýtt Ísland, nýir tímar og allsherjar uppstokkun er fram-
undan.  Valdatími framfarasinnaðra þjóðhyggjuafla!


mbl.is 57% ætla að segja nei
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of seint apríl-gabb hjá ykkur í SA og ASÍ!


   Hótanir samtaka atvinnulífsins og ASÍ varðandi Icesave,
er einfaldlega of seint aprílgabb, sem enginn tekur mark
á. Auk þess að vera  meiriháttar brandari að vilja draga
Icesave-skuldadrápsklyfjarnar inn í kjarasamninga sem
kjarabætur fyrir launþega. Þvílík öfugmæli! Ofurskatta-
píningu er yrði ávísun á enn stórfeldari kjaraskerðingu
en þá sem þegar hefur átt sér stað, og sem aldrei mun
sjást fyrir endann á

   Of seint aprílgabb því þetta eru sömu aðilanir  sem
hótuðu heimsendi ef hinir þjóðsvikuli Svavarssamningur
í Icesave yrði ekki samþykktur.

   Látum vera að aularnir hjá SA hóti undir forystu  Egils
Vilhjálmssonar sérfræðings í ragnarökum, en að það skuli
vera hlutskipti forystu ASÍ að kokgleypa slíkar aulahótanir
og gera að kjarabótaforsendu fyrir umbjóðendur sína til
næstu ára, er með slíkum ólíkindum, að ekki fá orð lýst. 

  Að ICESAVE sé allt í einu orðið meiriháttar  hornsteinn og
forsenda kjarabóta á Íslandi er þvílíkur farsi og absúrd
leikhús fáránleikans, að manni fallast hendur.

   Ætlar aulahættinum á Íslandi eiginlega  aldrei að linna?   
mbl.is Þarf að endurmeta stöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða þjóðflokkur eru þessir Icesave-sinnar eiginlega?


   Nú berast  þær  fréttir að utan  að stjórnvöld í Bretlandi og
Hollandi óttast hvað mest að Íslendingar hafni Icesave-kúgun
þeirra og málið fari fyrir dómsstóla. En einmitt dómsmálaleiðin
hefur verið helsta Grýla Icesave-sinna í þeirra þjóðfjandsama
málflutningi.

   Stöðugt fennir því nú í flest skjól þeirra sem kalla vilja yfir þjóð-
ina skuldadrápsklyfjar stórglæpamanna til næstu áratuga, sem
auk þess eru byggðar á ólögvarinni kröfu óvinveittra nýlendu-
velda, og eru því  þjóðinni algjörlega óviðkomandi.

   Þessi yfirgengilega þjóðfjandsamlega afstaða þessara Icesave-
sinna kalla eðlilega  fram  þá  spurningu, hvaða  þjóðflokki  þeir
eiginlega tilheyra? -   Eða tilheyra  þeir kannsi engum þjóðflokki?
Bara landlausu ístöðulausu liði sem nánast er tilbúið að liggja fyrir
hunda og mannafótum, hvar og hvenær  sem er? Ekki síst sé það
af erlendum toga innvinklað í einhverjan gjörspilltan alþjóðlegan
fjármálaheim, er telur sig geta haft almenning ætíð til þrautavara?
Að féþúfu!

   ÍSLENDINGAR!  KOLFELLUM ICESAVE HELSIР 9 apríl n.k! 

   ÁFRAM ÍSLAND!    
 
mbl.is Bretar og Hollendingar sagðir óttast dómstólaleiðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gróf íhlutun Lee Buchheits í íslenzk innanríkismál !


   Aðal samningarmaður Íslands í Icesave, Lee Buchheits,
hefur breytt  um  hlutverk  og gerst aðal  áróðursmeistari
Icesave-sinna  á  Íslandi.  Sem  er  hrein og  klár vítaverð
afskipti erlends ríkisborgara af íslenzkum innanríkismálum.
Toppaði hann afskipti sín í Kastljósinu í gær og hvatti  þar
þjóðina til að undirgangast kúgunarkröfur Breta og Holl-
lendinga. Og kórónaði svo viðtalið með því að taka fram
að  áróðursherferð  hans  um  landið að undanförnu hafi
verið kostuð af honum sjálfum en ekki íslenzka fjármála-
ráðuneytinu. 

  Þetta er með eindæmum. Hver trúir öllu þessu? Að aðal-
samningarmaður um Icesave með erlendan ríkisborgara-
rétt hafi að loknu samningahlutverki sínu farið ótilhvattur
í áróðursferð um landið þvert og endilangt til að hvetja Ís-
lendinga til að gleypa æluna? Og það á sinn eigin kostnað?
Eins óhagsstæðan samning og raun ber vitni? En jafnframt
eins hagstæðan samning  fyrir  Breta  og  Hollendinga og
hugsast getur!

  Í ljósi alls þess  svikula ljótleika hiðs ömurlega Icesaves-
máls er því   ekki að  ástæðulausu að ýmsar spurningar
vakni. T.d um SAMBAND og SAMSKIPTI hins erlenda sam-
ningsmanns og hinna erlendu kröfuhafa?  Ekki síst í ljósi
hinnar ömurlegu niðurstöðu sem nú liggur fyrir  í Icesave
111. Þar sem áhættan er öll Íslandsmegin. -  Utan hinnar
undanlegu  hegðunar samningarmannsins sem hér hefur
verið gert að umtalsefni.  

   ÁFRAM ÍSLAND!  NEI VIÐ ICESAVE


 

Neyðarkall Steingríms hefur ÞVERÖFUG ÁHRIF !


   Neyðarkall Steingríms J formanns VG til flokksmanna um að
samþykkja skuldir glæpamanna hefur ÞVERÖFUG ÁHRIF. Bara
sýnir titringinn sem kominn er í raðir þeirra sem vilja kúga
þjóðina til að taka á sig ÓLÖGVARÐAR KRÖFUR óvinveittra
nýlenduvelda, byggðar á einkaskuld stórglæpamanna sem er
þjóðinni ALGJÖRLEGA  ÓVIÐKOMANDI. Og sem ganga enn
lausir í þokkabít.

   Og ekki síst munu þessi neyðarhróp og köll þessa SAMA
Steingríms sem ætlaði að kúga Svarvars-glæpasamningnum
upp á þjóðina, hvetja enn frekar ALLA ÞJÓÐHOLLA ÍSLENDINGA
til að rísa upp  og KOLFELLA Icesave-þjóðsvíkin 9 apríl n.k.

   SEGJUM NEI  VIÐ ICESAVE OG SENDUM ÚT SKÝR SKILABOÐ
UM AÐ REFSA BERI FJÁRGLÆFRAÖFLUNUM ÆRLEGA!!

    ÞJÓÐIN SEGIR ÞVÍ NEI VIÐ ICESAVE!
mbl.is Hvetja félagsmenn til að kjósa já
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ASÍ sósíaldemókrataísk áróðursmaskína !


   Rétt hjá SAMSTÖÐU ÞJÓÐAR GEGN  Icesave að gera
alvarlegar athugasemdir við málflutning ASÍ varðandi
Icesave-samninginn. Því ASÍ er í raun ekkert annað en
sósíaldemókrataísk ÁRÓÐURSMASKÍNA. Bæði í Icesave
og varðandi aðild Íslands að ESB!

   Hvar í veröldinni þekkist það  að frjáls samtök launþega
blandi sér í hápólitísk hitamál? Þar sem afstaðan er aug-
ljóslega tekin gegn hagsmunum launaþega, eins og til-
fellinu um Icesave og ESB-aðildina. -  Því í Icesave á að
demba meiriháttar skuldaklafa á þjóðina með tilheyrandi
skattpíningu og velferðarskerðingu. Og í ESB-aðildinni
felst í raun stórskerðing á lífsgæðum þjóðarinnar  með
meiriháttar fullveldisafsali og framsali auðlinda til yfir-
þjóðlegs valds.

   Já hvenær verður almennt hætt að líta á ASÍ sem hluta 
af verkalýðshreyfingunni, heldur sem óaðskiljanlegri deild
sósíaldemókrataismans á Íslandi?  
mbl.is Gerir athugasemdir við málflutning ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Formaður Sjálfstæðisflokksins vill vinstristjórnina áfram


    Get heilshugar tekið undir orð Björns Bjarnasonar fyrrum
dómsmálaráðherra, að ,,vísasti vegurinn til þess að lengja
þann tíma sem núverandi ríkisstjórn sitji sé að samþykkja
lögin um Icesave-samninganna".

   Með öðrum orðum. Bjarni Benediktsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins vill að hin afdankaða óþjóðholla vinstri-
stjórn sitji áfram.  Sem staðfestir orð mín áður að hin
sósíaldemókrataísku öfl innan Sjálfstæðisflokksins hafa
náð yfirtökunum í flokknum, eftir að  Bjarni Benediktsson
gekk til liðs við þau að áeggjan Þorgerðar Katrínar Gunn-
arsdóttir, ofur-sósíaldemókrata í flokknum.

   Hvergi á byggðu bóli hefði þjóðhollur borgaralegur flokk-
ur galopnað óútfylltan víxil á ríkissjóð fyrir ólögvarinni kröfu
óvinveittra þjóða,  byggðri á óreiðuskuldum glæpamanna í
heimalöndum kröfuhafa, er enn ganga lausir m.a í þeirra
eigin lögsögu.

   Er að furða að Sjálfstæðisflokkurinn logi nú stafna á milli?
Er að furða þótt sannir borgarasinnaðir þjóðhyggjumenn
leiti nú á önnur mið?

   ÁFRAM ÍSLAND!   EKKERT ICESAVE-HELSI

  
mbl.is Segir ríkisstjórnina standa atvinnulífinu fyrir þrifum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icesave-liðið fundar um kjaramál. Brandari!


  Grátbroslegt og algjör brandari að horfa upp á leiksýningu
aðila vinnumarkaðsins og ríkisstjórnarinnar funda um kjaramál.
Aðila sem nákvæmlega á sama tíma  berjast á hæl og hnakka
fyrir að icvcsave-skuldadrápsklyfjarnar verði hengdar um þjóðar-
hálsinn næstu áratugi.  - Með tilheyrandi skattpíningu og kjara-
skerðingu fyrir íslenzka launþega og almenning á Íslandi.

   Hræsnin og tvískinnungurinn ALGJÖR!  Sem þjóðin mun RÆKI-
LEGA svara og refsa fyrir þann 9 apríl n.k.

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKERT ICESAVE-HELSI!
mbl.is Funda um framhald viðræðnanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband