För Ingibjargar til Mið-austurlanda tengt Öryggisráðsruglinu


   Það hefur ekki frarið fram hjá neinum að Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra  er á miklu flandri um Mið-
austurlönd. Hvorki meir né minna en heil vika á  að fara í
þessa  ,,vísitasiu". Að tilgangur ferðarinnar sé sá að kynna
sér ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs varðandi friðarmögu-
leika er að sjálfsögðu eintómur fyrirsláttur. Vandamálið hefur
legið fyrir þarna fyrir austan um áratugi, en áhugi heima-
manna til að leysa hann er afar takmarkaður, svo ekki sé 
meira sagt.  Trúarruglið og öfganar í þessum heimshluta er
slíkt að þessi för Ingibjargar mun í engu breyta þar um.
Enda viðurkenndi utanríkisráðherra það að förin tengdist
ekki síst  umsókn Íslands að Öryggisráði sameinuðu þjóðanna.
Förin er því fyrst og fremst liður í þeim herkostnaði. Því ljóst er,
að halda að Ísland geti einhver áhrif haft á gang mála í Mið-
austurlöndum, er mikil fásinna.

   Vitleysan og ruglið kringum Öryggisráðið virðist engan enda
ætla að taka.  Um daginn var ráðinn sérstakur verkefnastjóri
til að hafa umsjón með framboðinu. Öllu virðist til  tjaldað.
Jafnvel tilganslaust flandur um Mið-austurlönd í heila víku
er sétt á svið. Og almenningur á Ísland  borgar svo brúsann.
Ruglið er algjört!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sammála þér með að við eigum ekki að sækjast eftir setu í Öryggisráðinu. EN með Mið-Austurlönd finnst mér það ekki þroskuð afstaða að segja að ástandið sé þannig að ekkert sé hægt að gera. Tel að það séu til lausnir en til að þær finnist þurfa þjóðir að halda áfram að vinna að því að þær finnist. Ef að allir segðu bara þetta er svo ruglað þarna að það er ekkert hægt að gera þá værum við að gefa yfirlýsingu um að okkur væri sama um þjáningar og þrengingar almennings þarna.

Magnús Helgi Björgvinsson, 19.7.2007 kl. 01:07

2 Smámynd: Halla Rut

Hjartanlega sammála þér. Tilhvers eigum við að taka þátt í einhverju þar sem við höfum engin áhrif.

Halla Rut , 19.7.2007 kl. 01:31

3 Smámynd: Halla Rut

Vil einnig bæta við að ég er ekki að segja að okkur sé alveg sama um óréttlætið og vesöldina sem fólkið býr en tel þetta brölt Ingibjargar ekki breyta neinu. 

Halla Rut , 19.7.2007 kl. 01:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband