Áfall fyrir evrusinna


   Yfirlýsing seðlabankastjóra ESB um  að  EFTA ríkin  taki
upp evru án aðildar að ESB sé útilokað,   hlýtur að  vera
áfall fyrir evrusinna. Þetta kom fram á fundi í  dag að sögn
AP, þegar  íslenzkur  embættismaður  spurði  hvort  hann
sæi möguleika á að Ísland tæki upp evru án aðildar að ESB.
(sbr.Mbl.is) Raunar  kemur yfirlýsingin  alls  ekki á óvart. 
Vitað var ætíð að upptaka evru án aðildar að ESB væri mjög
óraunhæf hugmynd og meiriháttar  rugl.

   Vonandi að rugltalið um evruna taki nú enda. Sérstak-
lega að viðskiptaráðherra komi niður á jörðina og hætti 
þeirri vítaverðu iðju sinni að tala þjóðargjaldmiðil Íslend-
inga niður. Það er einsdæmi í veraldarsöguni að ráðherra
nokkurs ríkis tali þjóðargjaldmiðil sinn niður með þeim
hætti og íslenzki viðskiptaráðherra hefur gert að undan-
förnu.

   Þeir stjórnmálamenn sem hafa talað fyrir upptöku evru
án aðildar að ESB þurfa sömuleiðis að endurskoða sinn
málflutning.  Annað hvort göngum við í ESB og tökum
upp evru eða ekki.  Ekkert ,,hérumbil" tal er í stöðunni.
Þeir stjórnmálamenn sem ekki geta komið hreint fram í
því stórmáli hvort Ísland á að ganga í ESB eða ekki eiga
að hætta í stjórnmálum. Það er lágmarkskrafa til sérhvers
stjórnmálamanns að hafa SKÝRA stefnu í því stórmáli !
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

Viðskiptaráðherra hefur meiri áhuga á að gangast undir erlenda þjóðhöfðingja heldur en auka veg of virðingu landsins. Hann vinnur ekki að hagsmunum Íslendinga. ekki nema þá að hann vill að við séum feitir þrælar.

Fannar frá Rifi, 8.10.2007 kl. 18:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband