Flugvöllur hvað ? Möller hvað ?


   Eitt af fyrstu verkum borgarstjóra eftir að hinn nýji
merihluti var kominn á koppinn var að halda opinn
kratafund. Á honum barst flugvöllurinn í tal. Jú, það
var stefna  borgarstjóra að koma honum  burt  úr
Vatnsmýrinni. Sem fyrst! ,,Já, ég  þarf  augljóslega
að hitta Möller sem fyrst" sagði borgarstjóri íbygg-
inn á svip. Og hlaut mikið lófaklapp fyrir. Loks kominn
alvöru borgarstjóri.

  Möllir sagði í kvöld að borgarstjóri væri hvenær sem
er velkominn í heimsókn til sín. Hins vegar stæði alls
ekkert til að flytja flugvöllinn. Þvert á móti ætti að
styrkja hann enn frekar til eflingar samkeppni  í
innanlandsflugi. Vissi borgarstjóri ekki af afstöðu
Möllers sem hefur ætíð legið ljós fyrir? Og hvað
með hina borgarfulltrúana í meirihlutanum? Veit
borgarstjóri ekki af mjög skiptum skoðunum þeirra?

   Í hvaða heimi er hinn nýji borgarstjóri ?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband