Kosovo. Mun Ingibjörg Sólrún flækja Ísland í Íraksstríð nr.2 ?


   Atburðirnir eftir einhliða sjálfstæðisyfirlýsingu Kosovo í
gær og í dag sýna að stutt er í kveikjuþráðinn á Balkan-
skaga. Ljóst er að Bandarikjastjórn er höfuðgerandin
í málinu og ætti því ekki að koma á óvart hörð mótmæli
Serba við bandariska sendiráðið í Belgrad í gær. 

  Evrópa er þverklofin í málinu. Gegn sjálfstæðisyfirlýs-
ingunni fer stærsta ríki Evrópu, Rússland. Innan Evrópu-
sambandsins ríkir alvarlegur klofningur til málsins. Því
verður með engu móti trúað að íslenzk stjórnvöld ætli
að flækja Íslandi inn í þessa flóknu og hættulegu deilu.
Eða ætlar Ingibjörg Sólrún utanríkisráðherra virkilega
að flækja Ísland í annað Íraksstríð, eins og hún hefur
sterkleka gefið í skýn ?

  Eiga mistökin varðandi Íraksstríðið virkilega eftir að
endurtak sig, og nú undir forystu Ingibjargar Sólrúnu
Gísladóttir ? 
mbl.is Sendiráðsárásir fordæmdar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Hún hefur meiri áhuga á þessu en slori.

Sigurður Þórðarson, 22.2.2008 kl. 00:32

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bíddu við höfum jú verið þarna í um 10 ár með SÞ. Margir íslendingar unnið þarna. Þannig að við erum þegar flækt í þetta. Enda er þetta ekki innrás í landið. Það gerðist um 1996 eða 97 man það ekki alveg. En þá voru a.m.k. Framsókn og Sjálfstæðismenn við stjórnvölin. Síðan hefur Kosovo verið stjórnað af SÞ og/ESB. Manst væntanlega að það var ráðist þarna inn vegna þess að það var markvisst unnið að þjóðernishreinsun þarna.

Magnús Helgi Björgvinsson, 22.2.2008 kl. 00:53

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Kosovo er þjóðréttarlegur hluti Serbíu. Og viðurkenndur
sem slíkur, þ.á.m af Sameinuðu þjóðunum. Þótt múslimar séu þar
í meirihluta eiga þeir engan rétt fremur en aðrir trúarhópar innan
svæðisins að heimta sjálfstæði. Algjörlega út í hött! Hvað þá með
okkar nánustu nágranna, Færeyinga og Grænlendinga. Þeir eru
sannarlega sérstakar þjóðir og sem slíkar eiga fullan rétt á sjálfstæði. Eru þið kratar tilbúnir til að styðja þá og viðurkenna
þeirra sjalfstæði? Þar eru línur virkilegar skýrar! En ALLS EKKI í
Kosovo! 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.2.2008 kl. 01:10

4 Smámynd: Fannar frá Rifi

Til að vera samkvæm sjálfum okkur verðum við ásamt því að styðja sjálfstæði Kosovo að styðja Sjálfstæði Bosníu Serba. Þeir eru jú þjóðarbrot í héraði í öðru landi og þannig alveg sama dæmið og með Kosovo Albani.

Fannar frá Rifi, 22.2.2008 kl. 10:23

5 Smámynd: Andrés.si

Íslendingar hafa verið í stríð 1999. Það fór fram hjá flest öllum en þeir tóku þátt gegnum NATO.  Ingibjörg geri nuna einmitt það sama og kannski en verra að keyra Íslendingum í stríð. Reyndar samvískulaus.

Andrés.si, 22.2.2008 kl. 10:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband