Reynir SA að fela niðurstöðu ESB-könnunar?


    Björn Bjarnson dómsmálaráðherra spyr á sinni heimasíðu
hvers vegna Samtök atvinnulífsins SA hafi ekki birt niðurstöðu
úr skoðanakönnun SA um afstöðu atvinnulífsins til ESB-aðildar?

  Björn segir að skv. könnuninni sé 43% félagsmanna hlynnt
aðild, 40% andvíg og 17% óviss. Ef þetta er rétt kemur þetta
verulega á óvart. Því fullyrt hefur verið að mikill meirihluti
félagsmanna SA sé hlynntur ESB-aild.  Vilhjálmur Egilsson
framkvstj. SA fer undan í flæmingi og segir ekki tímabært að
staðfesta niðurstöðuna.
 
  Sé þetta rétt er þetta afar athyglisverð niðurstaða.  Ekki
síst í ljósi þess hversu sterkur áróðurinn hefur verið fyrir því
að atvinnulífið kalli á ESB-aðild, nánast einum rómi.

  Nú hefur það gagnstæða orðið raunin sé þetta niðurstaðan.
mbl.is Könnun á Evrópuáhuga í eðlilegum farvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

En skv. þessu Guðmundur er meirihluti fyrir aðildarumsókn að ESB. Og eru ekki inn í SA m.a. útgerðarmenn. Þeir hafa a.m.k. hótað að segja sig úr SA ef að SA styður aðildaviðræður. Ég segi bara að farið hefur fé betra. Menn sem hafa makað krókin á auðlynd okkar án þess að borga neitt fyrir hana. Og um leið og þeir hafa gert fjölda manns um allt land að leiguliðum og þrælum. Þ.e. þeir sem hafa verið að reyna að komast af með því að veiða fisk.

Magnús Helgi Björgvinsson, 13.12.2008 kl. 20:22

2 Smámynd: Fannar frá Rifi

43% og 40% sem sagt meirihluti í skoðanna könnun að þínu mati Magnús Helgi? Þetta er innan skekkju marka.

og hverjir eru í þessum 43% hópi Magnús? Vinir þínir sem komu með Bankahrunið og erlendu skuldirnar? Vinir þínir Noa Noa og kennitöluflakkarar? 

ekki kasta steinum í glerhúsi. 

Fannar frá Rifi, 13.12.2008 kl. 20:25

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Mér er svo HJARTANLEGA sama hverjir hagnast á því að nýta
fiskimiðin okkar svo að virðisaukinn af því skili sér 100% inn í okkar hagkerfi.
Það er ALLT ANNAÐ sem þið ESB sinnar stefnið að. Því með ESB aðild fá
útlendingar jafnan aðgang að okkar helstu auðlindum  og við. Þannig
að með tíð og tíma hverfur kvótinn í hendur erlendra aðila með skelfilegum
efnahagslegum afleiðingum fyrir þjóðina. Þess vegna eru ÖLL efnahagsleg
rök á móti ESB-aðild fyrir utan alla stóru gallanna.

Jú munurinn er innan skekkjumarka eins og Fannar bendir á, sem kemur
VERULEGA á óvart. Því haldið hefur verið fram að atvinnulífið HRÓPI á
aðild. Veit td að nánast ALLIR sem stunda útflutning (sem er okkar lífs-
spursmál í dag) vilja ekki sjá ESB og evru. Þá er þjóðin smátt og smátt
að átta sig á því að hin miklu fjárskuldbindingar sem þjóðin er að lenda
í til áratugar vegna ESB og EES-samningsins.  Hefðum við ALDREI gert
þennan andskotans EES samning heldur gert tvíhhliða viðskiptasamning
við ESB eins og við gerum við allar aðrar þjóðir hefðum við ALDREI lent
í þessu skuldafeni og nú.  EES-samningurinn við ESB er orðið okkur
mjög dýrkeyptur.  En það er ekki nóg hjá ykkur ESB-sinnum. Þið viljið
ganga miklu lengra og afhenda ESB yfirráð yfir okkar helstu auðlindum.
Ykkur er ekki sjálfrátt í svikseminni gagnvart landi og  þjóð.

Benedikt. Allir sem nenna að kynna sér málið vita í hverju ESB-aðild felst.
Þess vegna er ég á móti ESB-aðild og tel enga þörf á aðildarviðræðum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 13.12.2008 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband