Halldór stórskaðar framboðið í Reykjavík !
23.2.2014 | 00:31
Halldór Halldórsson oddviti á lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík er að stórskaða framboð flokksins. Það er með
öllu óskiljanlegt að svona laumu-sósíaldemókrati og mikill
og eldheitur ESB-sinni eins og Halldór er, skuli leiða lista
Sjálfstæðisflokksins í sjálfri höfuðborg Íslands. Alveg með
hreinum eindæmum!
Og svo forhertur er Halldór þessi í sinni ESB-sósíaldemó-
krataískri pólitík, að loks þegar þingflokkur Sjálfstæðisflokk-
sins og ríkisstjórnin hefur ákveðið að afturkalla ESB-umsókn-
ina, lýsir hann yfir miklum vonbrigðum, enda í hópi samtaka
sem berjast fyrir aðild Íslands að ESB.
Lognmollan yfir framboði Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
þarf ekki frekari skýringa við. Við stýrið situr sósíaldemó-
krati sem getur ekki hugsað sér að stugga við vinstraliðinu
og ESB-vinunum sínum sem nú stjórnar borginni. Enda
fylgið við flokkinn í samræmi við það. Sögulegt lágmark!
Nú fara fram ákveðin uppgjör í íslenskum stjórnmálum í
dag eftir hina stórpólitísku og góðu ákvörðun ríkisstjórnar-
innar að afturkalla hina illræmdu ESB-umsókn. Það að
Sjálfstæðisflokkurinn ætli að tefla fram yfirlýstum ESB-
sinna með sósíaldemókrataískt hjarta gengur ekki upp.
Nema flokkurinn sækist eftir algjöru afhroði!
Gleðitíðindi! Ísland áfram frjálst og fullvalda !
21.2.2014 | 23:55
Húrra Íslendingar! Ríkisstjórn Íslands hefur nú loks
ákveðið að draga hina þjóðhættulegu umsókn fyrrv.
vinstristjórnar um aðild Íslands að ESB til baka. Þar
með er Íslandi áfram tryggt fullveldi og forræði yfir
sínum málum. Já bara húrra fyrir því!
Nú munu norðurljósin dansa frjáls yfir Þingvöllum
sem aldrei fyrr, en sem kunnugt er brann Valhöll á
Þingvöllum einmitt þegar umræðan á Alþingi stóð sem
hæst um aðild Íslands að ESB í júlí 2009.
Táknrænt!
Og að það skulu vera tveir elstu stjórnmálaflokkar
Íslands sem hafa djörfung og dug til að leysa þjóðina
úr gíslingu ESB-landsölu-liðsins er einnig táknrænt!
Og frábært fyrir sterk tengsl þeirra við land og þjóð.
Tvær óásættanlegar blokkir í íslenskum stjórnmálum
virðast nú orðnar að veruleika. Þróun sem einnig á sér
stað í Evrópu í dag. Stjórnmálaöfl þjóðfrelsis og frelsi
einstaklinga annars vegar, og öfl ofurmiðstýringar og
yfirþjóðlegrar valdbeitingar í ætt við gamla Sovétið
hinsvegar. Vinstrimennskunar!
Það fyrrnefnda hefur sigrað á Íslandi í dag!
Húrra fyrir því!
Húrra fyrir áfram frjálsu Íslandi!
Ekki sótt um án atkvæðagreiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.2.2014 kl. 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
ESB-umsóknin dregin til baka í næstu viku !
18.2.2014 | 23:53
Áreiðanlegar heimildir herma að ESB-umsóknin verði dregin
til baka í næstu viku. Eftir að Alþingi hefur fjallað um Evrópu-
skýrslu utanríkisráðherra. Því ber mjög að fagna! Því það að
minnihlutahópur ESB-sinna hafi haldið þjóðinni í gíslingu í heil
4 ár er löngu orðið gjörsamlega óþolandi! ÚT Í HÖTT!
Átökin um fullveldi og sjálfstæði þjóðríkja breiðast nú út um
Evrópu sem aldrei fyrr. Áður voru það hin illræmdu Sovétríki
heimskommúnismans og öfga-vinstrisinna sem ógnuðu fullveldi
og sjálfstæði þjóða. Nú er það hið ofur-miðstýrða ESB með sínu
ógnvekjandi yfirþjóðlegu valdboði sem tekið hefur við. Ekki að
undra að stjórnmálaöfl þjóðfrelsis og frelsi einstaklinga sem
einkum koma frá hægri fara nú fremst gegn miðstýringar ofur -
skrímslinu í Brussel í dag!
Lygar og blekkingar ESB-sinna um ESB-ferlið og eðli þess
hefur nú endanlega verið afhjúpuð! Endauppgjörið við þá á
næstu dögum verður því bæði sætt og ánægjulegt!
ÁFRAM FRJÁLST ÍSLAND!!!!!!!!!!
Ísland gat ekki stytt sér leið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.2.2014 kl. 00:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Stór átök framundan í Evrópu. Uppreisn frá hægri!
15.2.2014 | 00:13
Á Evrópuvaktinni í gær var sagt frá tveim athyglisverðum
málum. Vísað var til fréttar Daily Telegraph um að gríðarleg
átök séu framundan í Evrópu, þar sem tekist sé um sjálfstæði
ríkja eða frekari sameiningu. - Og svo sagt frá stórsigri hins
hægrisinnaða UK independent Party í Bretlandi sem ýtti Íhalds-
flokknum til hliðar í aukakosningum í Wythensawe kjördæmi.
Jú það eru gríðarleg átök framundan í Evrópu milli gjörólíkra
pólitískra afla. Í allflestum löndum ESB og utan þess. Ekki síst
nú í þeirri alvarlegu stöðu sem ESB er komið í. Því er ekki að
undra að þjóðhollir hægrisinnaðir flokkar séu hvarvetna í
mikilli sókn gegn hinu gjörspillta miðstýrða yfirþjóðlega valdi
í Brussel. Sem gengur þvert á frelsi einstaklinga og þjóða. Á
sama hátt og það er ekki undravert að það skuli vera einmitt
sósíaldemókratarnir og sósíalistar aðdáendur gamla Sovéts-
skipulagsins sem helst draga taum Evrópusambandsins og sam-
runaáforma þess.
Á Íslandi eru mikil átök um Evrópumál og sem munu fara
vaxandi næstu misserin. - Ekki síst er Alþingi tekur á næstu
dögum til umfjöllunar skýrslu um Evrópumál. En með henni
vænta andstæðingar ESB-aðildar að Alþingi dragi aðildarumsókn
Íslands að ESB tafarlaust til baka! Ef ekki munu gríðarleg átök
blossa upp sem ekki verður séð fyrir endann á. Nákvæmlega og
sem nú er að gerast í Evrópu.
Hin hraða og ánægjulega flokkspólitíska þróun í Evrópu til hægri
á eftir að ná til Íslands fyrr en seinna. Því uppgangur svokallaðra
Pírata og sósíaldemókratanna í Bjartri framtíð á Íslandi og annað
aularugl til vinstri er algjör tímaskekkja við það sem er að gerast
í Evrópu í dag.... ALGJÖR TÍMASKEKKJA!
Lekarugl vinstrisinna og uppljóstrun Víglundar
12.2.2014 | 00:12
Í dag hafa vinstrisinnaðir róttæklingar rækilega studdir af
hinu sósíaldemókrataíska öfga- og æsingablaðinu DV, hvatt
og boðið til mótmæla við innanríkisráðuneytið, og krefjast
afsagnar ráðherra. Vegna einhvers ,,leka" þar á bæ sem örfáir
skilja eða hafa nennt að skilja. Því þarna er klárlega skýrt dæmi
um þegar villta vinstrið tekst best upp við að gera úlfalda úr
mýflugu til að þjóna sínum villtustu vinstrihvötum við að koma
höggi á sína pólitísku andstæðinga.
Athyglisvert er að á sama tíma liggur fyrir ítarleg úttekt og
stórmerkilegt bréf til Alþingis frá Víglundi Þorsteinssyni, þar sem
þess er krafist að þjóðin verði upplýst um það ferli sem fyrrv.
vinstristjórn setti af stað, sem leiddi til til þess að erlendir hræ-
gammar eignuðust tvo ríkisbanka á silfurfati. Og braut meir að
segja neyðarlögin til að koma því í kring. - Til stórskaða fyrir
íslenska þjóðarhagsmuni! En einmitt þá steinþegir villta vinstrið
sínu þunnasta hljóði og vill alls ekkert af slíku vita, með hið
hrokafulla og Icesave-sinnaða DV í fararbroddi!
Það að heil þjóð hafi verið svikin og gróflega brotið á sbr. bréf
Víglundar, er létt í vasa hjá villta vinstrinu! En þegar einhver mjög
svo óljós ,,leki" sem örfáir botna í á í hlut ætlar allt vitlaust að verða
í villta vinstrinu. Villta vinstrinu sem mátti þola tvö stór NEI í Icesave-
þjóðaratkvæðagreiðslum án þess að stuna né hósti heyrðist úr villta
vinstrinu. Hvað þá að ráðherrar yrðu krafðir til afsagna þá!
HRÆSNI!
Bréfið tekið fyrir fljótlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Icesave-liðið svari til saka !
10.2.2014 | 21:44
Skv. fréttastofu RÚV sem barðist ákaft fyrir að þjóðin
samþykkti Icesave-samninganna, ekki hvað síst hinn
illræmda ,,Svarvars-samning", hefur Hollenski seðla-
bankinn og Breski innistæðuinnistæðusjóðurinn krafið
íslenska innistæðutryggingasjóðinn ekki bara um 556
milljarða. Heldur sé heildarkrafan með vöxtum og öðrum
kostnaði um kr. 1000 milljarðar. Hvorki meir né minna!
Að sjálfsögðu mun ekki króna falla á íslenska skatt-
greiðendur, þar sem þjóð, forseti og sannir íslenskir
stjórnmálamenn komu í veg fyrir það. Og sem EFTA-
dómstóllinn staðfesti að lokum.
Hins vegar sjá nú allir hversu himinháar fjárhæðir
Icesave-liðið á Alþingi og ríkisstjórn á sínum tíma var
reiðubúið að láta ríki og þjóð greiða. ALGJÖRLEGA
ÓLÖGVARÐAR KRÖFUR! ALLIR SJÁ núna að ef t.d
hinn illræmdi ,,Svavars-samningur" hefði farið í gegn
væri ríkið og þjóðin gjaldþrota í dag. Marggjaldþrota!
Því okurvextirnir og afborgarnar áttu að greiðast beint
úr ríkiskassanum MEÐ ERLENDUM GJALDEYRI SEM VAR
OG ER EKKI TIL!!
Hvers vegna hefur Icesave-þjóðarsvikin ekki verið
rannsökuð? Hvers vegna hafa helstu Icesave-sinnanir
sem fyrrum ráðherrar og þingmenn, auk embættismanna
t.d í Svavars-samningarnefndinni, ekki verið látnir svara
til saka?
Krafan hlýtur því nú að vera sú, ekki síst nú í ljósi þessara
síðustu atburða í Icesave, að þetta helsta Icesave-lið svari
til saka. Því hér var um MEÐVITAÐAN glæp að ræða gegn
þjóðarhagsmunum Íslendinga. Augljóslega tengdan ESB-
umsókninni..................
Krafan er góð áminning | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |