Rússar okkar helsta vinaþjóð. Gunnar Bragi á villigötum!


     Það að Rússar skulu undanskilja Ísland í viðskiptastríði
þeirra við N-Ameríku og ESB-ríkin auk Noregs, undirstrikar
enn og aftur hina kristnu  Rússa sem helstu  vinaþjóð okkar.
Þetta gerist þrátt fyrir stefnu Gunnars Braga utanríkisráðherra
í málefnum Úkraínu. En þar hefur ráðherra farið offari svo ekki
sé meira sagt!

    Það er alveg með ólíkindum hvernig Gunnar Bragi hefur 
hagað sér í málefnum Úkraínu, sem er í raun ekkert annað
en daður hans við útþenslustefnu ESB í Evrópu. Sem skýrir
kúvendingu hans í Evrópumálum og öllu klúðri hans við að
draga umsókn Íslands að ESB til baka!!   

    Málefni Úkraínu eru margflókin sem við Íslendingar eigum 
alls ekki að blanda okkur í. Stórveldahagsmunir! Framferði
Gunnars Braga   að undanförnu í málefnum Úkraínu gætu
því stórskaðað viðskiptahagsmuni Íslendinga, sem við eigum
síst við í dag. Utanríkisstefna Gunnars Braga er því þarna á
algjörum villigötum! Þjónar ekki íslenskum hagsmunum,
heldur hégómagirnd og barnaskap ráðherra!  

   Slíkur ráðherra ber að víkja!

Er innra öryggi Íslands í molum?


    Hryðjuverkaógnin sem nú hvílir yfir Noregi er þörf ábending
til okkar Íslendinga! Því það sem gerist hjá frændum vorum 
Norðmönnum, getur haglega gerst á Íslandi!

   Já hvað með  innra öryggi Íslands? Ekkert heimavarnarlið, 
enginn sérþjálfuð fjölmenn vel vopnum búin öryggissveit, 
og því síður öflug leyniþjónusta á við það sem gerist t.d á 
hinum Norðurlöndunum.

   Eftir að USA-herinn hvarf frá Íslandi virðast öryggis- og
varnarmál Íslands í molum!  Ekki einu sinni lágmarkskrafan
um öfluga leyniþjónustu og eflingu Landhelgisgæslu kom í
kjölfarið!  Hvað þá stofnun vara-lögregluliðs og stóreflingu
Víkingasveitar vel vopnum búin.

   Ísland er NATO--þjóð!  Hvers vegna hefur ekki verið sótt
um fé úr mannvirkjasjóði NATO til eflingu þeirra  grunnþátta
í öryggis- og varnarmálum sem hér hefur verið nefnt? Ekki
síst þar sem lega Íslands á miðju Atlantshafi  hefur aftur 
öðlast hernaðarlega þýðingu fyrir okkar helstu vinaþjóðir!
Fyrir utan sívaxandi spennu í heimsmálunum í dag!

   Það er HÖFUÐSKYLDA hvers ríkis að verja öryggi þegna
sinna. Bæði innanfrá og frá utanaðkomandi ógn, m.a hryðju-
verkum.  Eiga Íslendingar ekki sömu kröfu og aðrar þjóðir
í þeim efnum? Eða á hinn ofur-óábyrgi séríslenski vinstri-
sinnaði heigulsháttur í öryggis-og varnarmálum enn að
ráða för?  Og það þrátt fyrir nýja borgaralega ríkisstjórn?

mbl.is Bönnuðu flug yfir miðborg Björgvinjar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athyglisverð yfirlýsing formanns Hægri grænna !


   Vert er að vekja athygli á yfirlýsingu formanns og leiðtoga
Hægri grænna Helga Helgasonar á facebook sinni í gær. 
Tilefnið er ótti Norðmanna við hugsanlegri hryðjuverkaárás
,,norskra" ríkisborgara á Noreg.  Helgi skrifar:

   ,, Er þetta ,,fjölmenningar" þjóðfélagið sem við viljum?
,,Norskir" ríkisborgarar að koma ,,heim" til að fremja hryðju-
verk í nafni Allah. Ég segi NEI! Enga mosku í Reykjavík takk!
Er þetta sem villta vinstrið vill, navistanir í samfylkingu og VG".

   Fagna ber þessari afgerandi yfirlýsingu, sem á sér djúpar
pólitískar rætur, sem allir þjóðhollir hægrisinnar hljóta að taka
undir og skoða! Því með  þessu virðist leiðtogi Hægri grænna
vilja marka flokknum skýra stöðu og valkost til hægri í íslenskum
stjórnmálum sem ekki er vanþörf á í dag. Svara kalli tímans!
Ekki síst með  hliðsjón þess það sem er að gerast í stjórnmálum
Evrópu í dag og heimsmálunum !

  HÆGRI GRÆNIR virðast flokkur SEM ÞORIR undir stjórn hins
nýja leiðtoga Helga Helgasonar!

Stríðsglæpir síonista og íslamista !


    Fyrir botni Miðjarðarhafs og raunar í Mið-Austurlöndum
geysir grimmilegt stríð. Í Palestínu berjast öfgasinnaðir
síonistar við öfgasinnaða íslamista. Og annars staðar  í
Mið-austurlöndun s.s  Írak, Sýrlandi og  víðar  berjast 
öfgafullir íslamistar innbyrðis. Hatrið og drápsfýsnin 
virðist óendanleg hjá þessum stríðsglæpamönnum og 
ekkert  virðist  duga  til  að  koma  vitinu  fyrir  þessar
skepnur! Því annað er ekki hægt að kalla þessi pólitísku
villudýr Mið-Austurlanda, slíkir eru stríðsglæpir þeirra,
en meðan líða óbreyttir borgarar miklar þjáningar sem
orð fá ekki lýst!

   Meðan þessi öfgaöfl síonista og íslamista ráða ríkjum,
er alveg fráleitt að Ísland blandi sér inn í þennan hrylling.
Gætu frekar reynt að koma vitinu fyrir þær vestrænu 
þjóðir, s.s USA sem selja þessum villidýrum vopn, þótt 
það sé afar ólíklegt að  það takist.

    Mikil hætta er á að þessi átök breiðist út, m.a til Evrópu.
Sbr. hryðjuverkaáform norskra múslima í Noregi, sem 
ætti að vera þörf áminning til okkar á Vesturlöndum að
stöðva múslimavæðingu Evrópu! Því miður virðast 
róttækir og öfgafullir íslamistar vera í mikilli sókn enda 
markmið þeirra heimsyfirráð! Hér heima eigum við að 
bregðast við og banna moskubyggingu íslamista á Íslandi,
og setja þeim strangar skorður neita þeir að aðlagast okkar
venjum og grundvallarreglu!  Svo einfalt er það í ljósi
ástands heimsmála í dag!  

    Hér er sem sagt ENGINN munur gerður á framferði
öfga síonistanna í Ísrael, né öfga-Hamas-íslamistanna í
Palestínu og víðar!  Allt eru þetta öfga/stríðsglæpamenn
sem ber að meðhöndla sem slíka. - Og alveg með öllu
óskiljanlegt  hvernig  sumir  sem  kalla  sig kristna geta
tekið  afgerandi afstöðu með sitt hvorri stríðsglæpahópnum!  

   Eina friðarvonin er sú að það takist að útrýma þessum öfgum,
þótt því miður  sé ekkert útlit fyrir það í bráð!

mbl.is Funda vegna ástandsins á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn stendur uppúr! Dagur mikillar vonbrigða !


     Dagur mikilla vonbrigða fyrir Reykjavík er senn að kvöldi
kominn, þegar afturhaldsömustu vinstriöflin hafa myndað
nýjan meirihluta ásamt píratískum anarkistum. Meirihluti
fordóma, andlýðræðislegra vinnubragða og hatursáróðurs.
Höfuðborg Íslands gat ekki fengið verri þjóðháðtíðargjöf,
en 17 júní er nú skammt undan þegar þetta er skrifað.

    Ný saga haturs og fordóma hefur verið skrifuð strax á
fyrsta degi þessa borgarstjórnarmeirihluta. Þegar hann 
tekur einn stjórnmálaflokk, sjálfan sigurvegara kosning-
anna, í pólitískt einelti, vegna þess að  pólitík hans fellur
ekki  í  kramið á  pólitískum  ,,rétttrúnaðarhugsunarhætti"
vinstrimanna í borgarstjórn. -  Á  vinstrisinnuðu fagmáli
kallast það að ,,vera ekki stjórntækur" fyrir að lúta ekki
í einu og öllu í duft vinstrimennsku og skoðanakúgunar!

   Ömurlegast er þó að  horfa upp á undirlægjuhátt Sjálf-
stæðisflokksins gagnvart hinum nýja vinstrimeirihluta.
Já ömurleg var stjórnarandstaða Sjálfstæðisflokksins
á síðasta kjörtímabili, nánast engin! Enda hrundi fylgið af
flokknum. En enn ömurlegri ætlar núverandi borgarstjórnar-
flokkur Sjálfstæðisflokksins að verða, undir forystu sósíal-
demókratans og ESB- sinnans Halldórs Halldórssonar.
Hafnar ekki bara eðlilegu stjórnarandstöðusamstarfi við
Framsóknarflokkinn, heldur tekur upp beint samstarf við
vinstrimeirihlutann  um nefndarstörf og m.fl. Orðinn eins-
konar fimmta hjólið undir vinstra-meirihlutanum, eins og
hann var í raun allt  síðasta kjörtímabili. 

    Í lok þessa ömurlega Dags í höfuðborg Íslands daginn
fyrir 17 júní virðist það vera Framsókn sem stendur uppi
með pálmann í höndunum. Sem íhaldsmanni og hægri-
sinna verður maður að játa það!  Því á hvaða leið er þessi
Sjálfstæðisflokkur? Það  virðist hulin ráðgáta! Alvarlegast 
er  þó  það  að  hann  virðist  ekki hafa hugmynd um það 
sjálfur, eins og meirihlutamyndanir hans í stærstu sveitar-
félögunum með sósíaldemókrötum (sbr Björt framtíð) og
nú síðast í Reykjavík ber með sér!

mbl.is Gagnrýnir útilokun Framsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsætisráðherra krafinn skýrra svara 17 júní !


    Tek undir með Evrópuvaktinni að 17 júní ræðu forsætis- 
ráðherra er beðið með eftirvæntingu. Alveg sérstaklega 
hvað hann mun segja um eitt stærsta sjálfstæðismál þjóðar-
innar um þessar mundir, þ.e afturköllun umsóknar Íslands
að ESB!   

   Forsætisráðherra á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga 
17 júní n.k getur með engu móti víkist undan því að ræða 
þetta mikilvæga sjálfstæðismál þjóðarinnar,  og þá   með 
skýrum og  afdráttarlausum hætti!  Hvenær a.m.k innan
örfárra mánaða verður ESB-umsóknin afturkölluð? 

   Bent hefur verið á að ríkisstjórnin sem slík er ekkert að
vanbúnaði að afturkalla þingsályktun vinstristjórnarinnar
frá 2010 um umsókn að ESB. Núverandi ríkisstjórn  er
ekkert bundin af henni enda nægur þingmeirihluti í dag
fyrir afturkölluninni.  Pólitískur vilji er eina sem þarf!

   Já ræða forsætisráðherra er beðið með mikilli eftir-
væntingu!  Ekki verður á annað trúað en að forsætisráð-
herra íslenska lýðveldisins standi undir nafni á sjálfum
þjóðhátíðardeginum og tilkynni afturköllun umsóknar 
Íslands að ESB! En umsókn sú var og er ein alversta 
tilræði að fullveldi og sjálfstæði Íslands frá fullveldis-
töku og stofnun lýðveldis á Íslandi!

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband