Heimssýn í fundarherferð í boði ESB-umsóknarsinna ?
24.3.2010 | 00:16
Heimssýn samtök sjálfstæðissinna í Evrópumálum boðar
nú til fundar um land allt vegna umsóknar Íslands að ESB.
Gott og vel! - En hefði ekki verið trúverðugra fyrir samtök
þessi að hafa áður hreinsað til í eigin ranni? Alla vega að
stjórn samtakanna væri ekki undir stjórn og forystu manna,
sem bæði styðja flokk og ríkisstjórn sem sótt hefur um aðild
Íslands að ESB. - Þannig er t.d formaður Heimssýnar þing-
maður flokks sem styður aðildarumsókn að ESB. Formaður
sem styður ríkisstjórn sem vinnur hörðum höndum að því
að koma Íslandi inn í ESB. Og það nánast hvað sem það
kostar. Trúverðugt? - Þessi formaður hlýtur því alla vega Í
VERKI styðja ESB-umsóknarferlið fra a-ö. - Það er svo aug-
ljóst! Og þannig er farið um fleiri stjórnarmenn Heimssýnar
sem koma úr röðum hinna ESB-sinnuðu og and-þjóðlegu
sósíalistum úr Vinstri grænum. Því VG hljóta að skilgrein-
ast sem einlægur ESB-sinnaður flokkur, styðjandi umsókn
Íslands að ESB. Því einungis ESB-sinnar sækja um aðild að
ESB. Er það ekki nokkuð ljóst? Alla vega sækir enginn um
það sem viðkomandi er alfarið á móti. Eða er það ekki?
Já auðvitað er þetta skandall hvernig sella úr VG hefur
komið sér fyrir í Heimssýn á fölskum forsendum. Vinstri-
grænir eru vinstrisinnaðir róttæklingar eins og forverar
þeirra, hérlendir kommúnistar, er ætíð börðust gegn þjóð-
legum gildum og viðhorfum. - Stórhættulegir íslenzkum
hagsmunum, sem sést best á því, að það vantaði bara þá
í ríkisstjórn Íslands til að aðildarumsóknin að ESB yrði send
til Brussel ásamt inngöngumiðanum illræmda, Icesave.......
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Já, enn tek ég undir þessa skoðun þína, Guðmundur, maður sækir ekki um inngöngu í ríkjabandalag, sem maður ekki vill vera í. Og maður sem styður ríkisstjórnina sem það gerði, hlýtur að vera ótrúverðugur í Heimssýn og enn verra ef hann er formaður þar. Hann hlýtur að vera að vinna á fölskum forsendum, í það minnsta óskiljanlegum forsendum að mínum dómi.
Elle_, 26.3.2010 kl. 22:37
TaKK Elle fyrir undittektirnar!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 27.3.2010 kl. 19:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.