Hrundrottning og málsvari erlends útgerðarauðvalds!


   Hrundrottningin sjálf, Jóhanna Sigurðardóttir, kennir hrunflokkum
um hrunið. En gleymir  sjálfri  sér  og sínum eigin HRUNflokki. Því hún
og hennar HRUNflokkur bera ekki síður ábyrgð á hruninu, og raunar
almestri ábyrgðinni, með  yfirstjórn  bankamála  og  fjármálaeftirlits 
á  sinni könnu þegar bankarnir hrundu. -  Þá voru það Jóhanna  og 
hennar óþjóðhollu sósíaldemókratar sem innleiddu hinn stórgallaða 
EES-samning yfir þjóðina, kveikjan af útrás mafíuósanna. Og þessi
sama Jóhanna sat svo í þeirri ríkisstjórn sem lét þessa sömu útrás-
armafía skapa Icesave-glæpinn, og ætlast svo  til  að þjóðin borgi
skuldaklafann eftir þá, án  neinna lagastoða. Hin siðspillta Jóhanna
kórónar svo skömmina með því að SITJA ENN ÁFRAM í ríkisstjórn, og
það sem forsætisráðherra, sem sat í gömlu hrunstjórninni og ber því
sem slík FULLA ÁBYRGÐ á henni og hennar hrikalegu misstökum. Vera
Jóhönnu og hennar samhrunsráðherra Össuri  og Kristjáni Möller  í
ríkisstjórn í dag er  því  MEIRIHÁTTAR  SKANDALL,  og  kannski  þar 
komin skýringin á því hvers vegna ALLIR útrásarmafíuósanir ganga 
enn  lausir eins og EKKERT hafi gerst!

   Hrundrottningin sjálf er því  að kasta  steini  úr glerhúsi ásakandi
aðra en sjálfa sig um hrunið. -  Út fyrir  tekur  þó árásir hennar á ís-
lenzka útgerðarmenn og  breytingar  á  fiskveiðastjórnunarkerfinu.
Hrun-Icesave-drottningin sjálf sem vill troða Íslandi inn í ESB og þar
með m.a færa erlendu útgerðarauðvaldi  íslenzk fiskimið í hendur á 
silfurfati. En með ESB-aðild fær ESB-útgerðarauðvaldið sama rétt og
Íslendingar að fjárfesta í íslenzkum sjávarútvegi, og komast þannig
yfir íslenzka kvótann og þar með bakdyramegin inn í íslenzka
fiskveiðilögsögu. - Jóhanna Sigurðardóttir er þannig í reynd helsti
talsmaður erlends útgerðarauðvalds á Íslandi  í dag.  Gegn hags-
munum íslenzkra sjómanna og útgerðarmanna og þar með gegn
íslenzkum hagsmunum.  Enda vinnur markvíst gegn íslenzkum hags-
munum í hverju stórmálinu á fætur öðru, sbr. Icesave-þjóðsvika-
samningurinn. Slík manneskja á ekki heima í íslenzkum stjórnmálum!
BURT MEÐ HANA OG HENNAR AND-ÞJÓÐLEGU VINSTRISTJÓRN!

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
mbl.is Athugað hvort hægt er að auka aflaheimildir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Útgerðarauðvaldið í Bretlandi fagnar t.d mjög umsókn Íslands að ESB
og hugsar gott til glóðarinnar hugsandi um gömlu góðu daganna á
Íslandsmiðum. Sama á við um spánska útgerðarauðvaldið! 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 28.3.2010 kl. 01:25

2 identicon

Kannski getur Jóhanna komið okkur útaf mannréttindalistanum hjá UN, og í framhaldinu komi fiskiskip á Íslandi sem eru ekki heilsuspillandi eldgamalt drasl. Síðan mætti Jóhanna ná í alvöru fjandafælu, til að kveða niður LÍÚ drauga garðinn.

Robert (IP-tala skráð) 28.3.2010 kl. 03:12

3 identicon

EES-samningurinn sem Alþýðuflokkurinn sálugi með Jóni Baldvini og Jóhönnu Sig í farabroddi  studdi og innleyddi með ráðum og dáðum, olli meira tjóni en nokkurn tíma nýfrjálshyggja Sjálfstæðisflokksins, því það er mikill munur á að opna landamæri landa sem stuðla að óheftum flutningi vinnuafls á milli landa, heldur en reglugerðir um viðskiptafrelsi.  Ástæðan er einfaldlega sú að búin var til eftirspurn eftir vinnuafli sem ekki var mætt með innlendu vinnuafli.

Ef EES-samningurinn hefði ekki verið tekinn svo einhliða upp eins og raunin var hefði staða atvinnumála ekki orðið eins og hún er í dag, því að sjálfsögðu studdi Alþýðuflokkurinn (sbr. Samfylking) óheftan innflutning erlends vinnuafls sem er nú meirihluti atvinnulausra.  Eftirspurninni á sínum tíma hefði átt að mæta með hærri launum til íslenskra umsækjenda heldur en að lækka þau niður fyrir fátækramörk með hópainnflutningi á útlendingum.

Brynja (IP-tala skráð) 28.3.2010 kl. 03:23

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Stýriverk EU [stjórnskiplagarammarnir: stofnannaheilaforritin] gera ráð fyrir að allir sé öðrum háðir  til að fyrirbyggja átök innbyrðis, þetta kallast samþætting allir skulda öllum: gallarnir koma fram hér í hruninu enginn er látin sæta ábyrgð. Síðan eiga allar einingar að vera sjálfábyrgar til að veikja undir-ríkisbáknin.  Því fylgir gervi [bakábyrgð ríkis í felum] séreignarvæðing. Póstþjónusta verður lélegri og dýrari fyrir almenning t.d. Skuldir Ríkis minnka bókhaldslega vegna þess að þær færast á nýju gervi séreignaforminn.  Svo maka þau krókinn á neytendum í fákeppni, og stjórnmálmennirnir sleppa við skellinn, en skatta prósenta og vaxta lækkar nánast við gervi séreignarvæðingu.

Í skýrslu IMF 2005 er vitnað í Seðlabanka Íslands. Flytja inn 800 labour á ári vegna mikillar útlánaþarfar séreignarfjármálgeirans [sem Ríkið hefur verið að fjárfesta af full þunga í síðan 1982.

Þetta lið átti lækka undirliggjandi verðbólgu [fjármagns útflæði] frá 1998.

Ég hélt alltaf að arðsemissjónarmið af eðlilegri rekstrarstarfsemi  hefðu kallað á vinnuaflið. Nei það var fækkun á markaði vegna gervi menntunnar og aukningu á hreinum kostnaðar þjónustu störfum handa lötum Íslendingum eða andlega afkastalitlum.   

Það flytur ekkert heilbrigt Ríki inn fólk til að minnka nettó þjóðartekjur á haus.  Fólksfjöldi er vandamál svo mikið að það er ekki nefnt lengur í EU þegar orkuskortur og hráefnisskortur fór að verða alvarlegur til lengri tíma litið.

Svo byggja menn heldur ekki fyrirfram nema í Kína.

Hér var byggt til að auka veðsöfn íbúalánasjóðs til dæmis sem séreignarbankarnir höfðu aðgang að. Til að fjármagna fjárfestingar víðsvegar í EU af hluthöfum sömu banka.

Stórhluti þjóðartekna í dag kallast í heilbrigðum virðisaukaskapandi rekstri hér áður fyrr "glæpsamlegur afætukostnaður" af ábyrgu raungróða einkaframtaki. 

Magn þjóðartekna skipta máli en gæði öllu máli. Allmenn gæði eru einkenni hátekju þroskaðra samfélaga. Virðisaukandi innri kostnaðar er réttlætanlegur góður vegna þess að bókast við sölu afurða/framleiðslu og verður eftir.  Skilar almennum launaskatti og virðisauka og minn þjónustu þörf af hálfu ríkis og sveitafélaga, sem er raun skattalækkandi.

Litla gula hæna bakaði brauð. Animal Farm fellur í skuggan af ráðstjórn Íslands í dag. 

Júlíus Björnsson, 28.3.2010 kl. 04:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband