Hvernig geta Frjálslyndir stutt ESB-sinna á Vestfjörðum ?


   Það er ekki  lengur  hægt að  tala  um  pólitískt gjaldþrot
Fjórflokksins. Því Frjálslyndir eru það líka, enda þurrkuðust
þeir út í síðustu kosningum. -  Nýjasta dæmið um pólitíska
siðspillingu Frjálslynda, er að bjóða sameiginlega fram í lang
stærsta bæjarfélagi Vestfjarða með kommúnistum og hinni
öfgasinnuðu Samfylkingu í Evrópumálum. Þannig að Frjáls-
lyndir eru með þessu að gera það mögulegt að næsti bæjar-
stjóri í stærstra vestfirsku sveitarfélaginu verði öfgasinnaður
ESB-sinni. Sem vill ganga í ESB og rústa þar með íslenzkum
sjávarútvegi, kjölfestu Vestfjarða. Setja vestfirskan kvóta
á uppboðsmarkað ESB, og leyfa útlendingum að hirða hann.
Og rústa þannig ENDANLEGA vestfirsku samfélagi. Hvers
konar pólitík er þetta ?

   Frjálslyndir hafa löngum verið ráðvilltir í stjórnmálum. Því
ekki alls fyrir löngu var sjálfur  formaður  þeirra  aðstoðar-
maður ráðherra í ríkisstjórn kommúnista og sósíaldemó-
krata. Ríkisstjórn sem berst fyrir inngöngu Íslands í ESB,
og að þjóðin verði látin borga skuldadrápsklyfjar útrásar-
mafíuósa sbr. Icesave. - Nei. Því miður hef aldrei skilið póli-
tík Frjálslyndra.

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERI ICESAVE né AGS!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Af hverju ertu með ESB á heilanum?

Sleggjan og Hvellurinn, 16.5.2010 kl. 17:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband