Braskað með auðlindir þjóðarinnar undir stjórn vinstrimanna !
17.5.2010 | 00:11
Er það nokkur tilviljun að þriðja stærsta orkuauðlind þjóðarinnar
sé nú að lenda í höndum útlendinga, undir ríkisstjórnarforystu
vinstrimanna? Nei alls ekki. Þetta hlýtur að vera beint framhald
af t.d ESB-umsókn ríkisstjórnar vinstrimanna. En við aðild Íslands
að ESB fara helstu auðlindir Íslands á uppboðsmarkað ESB. Meir
að segja öll fiskimiðin. Svo koma menn eins og Ögmundur Jónas-
son úr Vinstri grænum og eru bara hissa og rífa kjaft. Menn eins
og Ögmundur Jónasson sem styður bæði flokk og ríkisstjórn sem
vinnur nótt og dag að koma Íslandi inní ESB. Enda hefur formaður
Ögmundar í VG, Steingrímur J.Sigfússon fjármálaráðherra og ESB-
sinni ekki hreyft legg né lið til að koma í veg fyrir að HS orka
lendi í höndum útlendinga. - Enda í hjarta sínu andskotans sama!!
Lykilmaðurinn í því að umsókn Íslands að ESB var send til Brussel.
Það er á ábyrgð ríkisstjórnar hverju sinni að sjá til þess að helstu
auðlindir þjóðarinnar haldist í hennar eigu. - ENGUM er eins illa
treystandi til þess og vinstrimönnum. HS orka er eitt dæmi um það.
ESB-umsóknin er svo sjálf kórónan yfir slík þjóðarsvik, eins og Ice-
save þjóðsvíkin líka. - Því þarf þjóðin að rísa upp gegn þessum
andþjóðlegum vinstriöflum, og úthýsa þeim úr íslezkum stjórnmálum.
Þjóðarhagsmunir íslenzkrar þjóðar krefjast þess sbr HS-orka í dag!
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
Segir braskað með auðlindir þjóðarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Algerlega sammála, Guðmundur. Og nú þykist allur VG vera voða andvígur. Versta er að maður trúir þeim ekki lengur.
Elle_, 18.5.2010 kl. 00:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.