Stjónlagaþing Jóhönnu áfangaferli að ESB
12.6.2010 | 13:24
Enn eitt dæmið um aumingjaskap stjórnarandstöðu að
standa ekki í lappirnar gegn áfangaferli ESB-sinna að leiða
Ísland inn í ESB. - Því augljóst er að Ísland gengur ekki í
ESB nema stjórnarskráin verði breytt með stórfeldu full-
veldisframsali til yfirþjóðlegra stofnana ESB. Þess vegna
leggur Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og hennar
ESB-lið á Alþingi ofurkapp á að ná fram breytingu á núver-
andi stjórnarskrá Íslands. EINMITT NÚ þegar ESB-aðlög-
unarferlið er í fullum gangi. Að Jóhanna og hennar lið geri
þetta undir yfirvarpi ást á lýðræðislegum umbótum eru
hreinasta ÖFUGMÆLI. Nýbúin að hunsa eitt stykki þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Þess utan eru þessi lög um stjórnlaga-
þing í meiriháttar skötulíki, og ekkert annað en einn enn
fjárausturinn úr galtómum ríkiskassanum.
Þarna klikkuðu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur enn
eina ferðina, sem sýnir hversu mikil þörfin er orðin á að
brjóta upp flokkakerfið á mið/hægri kanti íslenzkra stjórn-
mála. Þannig að fram komu ÖFLUGUR ÞJÓÐLEGUR FLOKKUR
Á BORGARALEGUM GRUNNI, sem yrði fær um að takast á
við hin andþjóðlegu vinstriöfl og aðra anarkista, sem nú
vaða uppi í óþökk þjóðarhagsmuna. Fyrr mun Ísland ekki
upp rísa !
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
Stjórnlagaþing að verða að lögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.