Hægri grænum best treystandi í Evrópumálum !
9.7.2010 | 00:24
Hinn nýstofnaði flokkur HÆGRI GRÆNIR sem stefna á framboð
í öllum kjördæmum, er best treystandi í Evrópumálum. Sjálfstæðis-
flokknum er ekki treystandi, þótt nú segist vilja draga ESB-um-
sóknarferlið til baka. - Flokkur sem hefur eldheita ESB-sinna á að
skipa, þ.á.m í þingflokki. - Flokkur sem leiddi hina ESB-sinnuðu
sósíaldemókrata til vegs og virðingar í ríkisstjórn Íslands, með
þeim afleiðingum, að aðlögunarferli Íslands að ESB er hafið. Enda
flokkur sem kom á EES-samningunum með sósíaldemókrötum. Og
flokkur sem enn daðrar við hina ESB-sinnuðu Samfylkingu sína í
sjálfri höfuðborg Íslands, og myndar með henni þar óbeinan meiri-
hluta ásamt stjórnleysingjum. Flokkur sem ber auk þess höfuð-
ábyrgð á stærsta efnahagshruni Íslandssögunar. NEI, SLÍKUM
FLOKKI ER ALLS EKKI TREYSTANDI!
HÆGRI GRÆNIR hafa skýra og klára stefnu m.a í Evrópumálum
og Icesave. Sem allir þjóðhollir hægrisinnar og þjóleg borgara-
öfl geta 100% treyst.
Sem hægrisinni með fordómalaus þjóðleg viðhorf treysti ég
HÆGRI GRÆNUM best, og hvet sem flesta til að kynna sér hann
sem er í hraðri uppbyggingu. Flokks almennings á Íslandi!
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
Umsókn Íslands verði dregin til baka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Heill og sæll; Guðmundur Jónas, æfinlega !
Sé hægt; að treysta Hægri grænum, til þess að vinna að afnámi núverandi stjórnarfars á Íslandi, og koma á Byltingarstjórn úrvals manna, vopnaðra, mun ég ég ekki skorast undan stuðningi við þá, fornvinur góður.
Með beztu kveðjum, sem jafnan, úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.7.2010 kl. 00:58
Hverjir eru leiðtogar Hægri grænna? Kannski bara 3-5 nöfn?
Björn Birgisson, 9.7.2010 kl. 02:01
Verkefnið er að sameina alla sjálfstæða íslendinga til varnar Lýðveldinu Island. Rétt eins og þjóðin sameinaðist á móti Icesave glæpnum. Hægri Grænir eru ábyggilega gott framlag og vísir til leiðsögu.
Björn Emilsson, 9.7.2010 kl. 04:21
Björn Birgisson. Enn og aftur. Fara á heimasíðu HÆGRI GRÆNIR á feacbook.
Þar finnur þú allar upplýsingar um flokkinn.
Takk fyrir Björn Emilson. Vonandi er þarna kominn vísir að flokki sem
berst fyrir sjálfstæðu Íslandi og hagsmunum almennings á Íslandi!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.7.2010 kl. 10:06
Nú er að sameina alla bloggara sem berjast fyrir sjálfstæu Islandi og bættum stjórnháttum.
Björn Emilsson, 9.7.2010 kl. 15:04
Mér finnst lágmark að þjóðernisfasistar drullist til að koma óbrenglaðri setningu á móðurmálinu á prent, áður en þeir fara í áróðursskrif. Ekki byrja svo með gömlu lesblinduafsökunina, sumir eru bara skyni skroppnir..
Pétur Sig, 9.7.2010 kl. 23:32
Hvað er feacbook? Fann ekkert slíkt!
Björn Birgisson, 10.7.2010 kl. 00:47
Ef þú finnur ekkert um facebook, mest vinsælasta samskiptavef í heimi hér
Björn minn, þá er mér vandi á höndum að leiðbeina þér!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.7.2010 kl. 01:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.