HÆGRI GRÆNUM einum treystandi í auðlindamálum !
26.7.2010 | 00:06
Kátbroslegt að horfa upp á vinstriflokkana báða í Magma-
málinu. Sérstaklega Vinstri græna. En nú er HRÆSNI þeirra
og tvöfeldni verulega farin að bíta þá. - Burt séð frá því að
hafa haft endalausan tíma til leysa málið. Þá er ósamræmið
í pólitískri framkomu þeirra ALGJÖRT! Því á sama tíma og VG
og hluti Samfylkingarinnar segjast vilja halda auðlindum þjóð-
arinnar í hennar eigu, vinna BÁÐIR þessir flokkar að því að
koma Íslandi inn í ESB. - Þetta tvennt GETUR ALDREI FARIÐ
SAMAN! ALDREI!
Það sama má segja um Sjálfstæðisflokkinn. Stefna hans er
afar óljós í auðlindamálum, enda ber hann mikla sök á Magma-
hneykslinu.
HÆGRI GRÆNIR hafa hins vegar ALGJÖRA sérstöðu í þessu.
Vilja að eignarhald og afnot ÍSLENDINGA yfir öllum auðlindum
Íslands verði STAÐFEST í stjórnarskrá, hvort sem um er að ræða
ofan eða neðanjarðar, og í 200 sjóml. efnahagslögsögu Íslands.
Þetta er TRÚVERÐUGT því HÆGRI GRÆNIR hafna ALFARIÐ aðild
Íslands að ESB, og því myndi þetta íslenzka stjórnarskráákvæði
halda. Sem ekki myndi gera, göngum við í erlent sambandsríki,
ESB. Eins og VG og Samfylkingin vilja gera!
HÆGRI GRÆNIR eru því flokkur íslenzkra þjóðarhagsmuna og
ALMENNINGS Á ÍSLANDI! Uppreisninin gegn hinu gjörspillta fjór-
flokki, sem komin er tími til að uppræta!!!! GJÖR-UPPRÆTA!!!!
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN. EKKERT ICESAVE né AGS!
![]() |
Gæti ógnað ríkisstjórninni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Guðmundur, er ekki komið að því að þjóðinn fái góða uppskeru, af fiskimiðum sínum. Hafskip LÍÚ eru að fiska hér upp í fjöru, sama afla eða minni, ( bolfiskafli Íslendinga er ca. 300.000 tonn ) heldur en SKARFAR
eru að veiða fyrir Kínverska fiskimenn. Þetta er orðinn þjóðarskömm,
er ekki mál að vakna.
Aðalsteinn Agnarsson, 26.7.2010 kl. 00:44
Einmitt Aðalsteinn. HÆGRI GRÆNIR eru vettvangur til UPPREISNAR gegn
GJÖRSPILLTU KERFI, sérstaklega HAFRÓ-KERFINU! Eigum að stórauka
veiðar frá því sem nú er, og stokka þetta HAFRÓ-stofnunina upp frá grunni!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 26.7.2010 kl. 00:50
Jamm,þetta er afdráttarlust.
Helga Kristjánsdóttir, 26.7.2010 kl. 01:45
Afdráttarlaust,átti það að vera ,var búin að skrifa heillanga athugasemd,en þurrkaði það síðan út allt nema þetta.
Helga Kristjánsdóttir, 26.7.2010 kl. 01:48
Styð þig, Guðmundur, vona að þetta gangi hjá flokknum ykkar.
Elle_, 26.7.2010 kl. 21:59
Spennandi að fylgjast með hægri grænum
Guðrún Sæmundsdóttir, 26.7.2010 kl. 23:38
Takk takk kæra Elle og Guðrún Sæm!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 27.7.2010 kl. 00:10
Flott blogg Guðmundur.
Ægir Óskar Hallgrímsson, 27.7.2010 kl. 09:40
Og ekki gleyma skattakerfishugmyndinni..sem er snilld einnig.
Ægir Óskar Hallgrímsson, 27.7.2010 kl. 09:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.