Róttæki kommúnistakjarni VG mun áfram svíkja ! Og svíkja!
30.8.2010 | 00:14
Það er alveg ljóst, að komi þingsályktunartillagan um
að afturkalla ESB-umsóknina til afgreiðslu í haust, mun
róttæki kommúnistakjarninn kringum Steingrím J og co
gera allt til að sú tillagan nái ekki fram að ganga. Ekki
bara vegna þess að kommúnistar svifist einskins í því
að halda völdum, og hika ekki við að fórna þjóðarhags-
munum, þjóðfrelsi og fullveldi í því sambandi. Heldur
ekki síður vegna þess að ÖFGA-alþjóðahyggja þeirra er
NÁKVÆMLEGA sú sama og sósíaldemókrata. Þess vegna
geta þeir alveg hugsað sér að ganga í Evrópusambandið
í dag, eins og í Sovétríkin forðum. ENDA SAMÞYKKTU ÞEIR
ESB-AÐILDARUMSÓKNINA, og settu þar með ESB-hraðlest-
ina af stað. BARA FYRIR SÍN KOMMÚNÍSKU VÖLD!
Þá er einnig ljóst að laumu sósíaldemókratarnir bæði í
Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki munu standa með
sósíaldemókrötunum í Samfylkingunni og reyna allt til að
tillagan nái ekki fram að ganga. Þar mun fremst fara fyrrv.
varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sem boðað hefur aftur
komu sína á þing í haust. Þannig munu allir sósíaldemó-
kratar og kommúnistar gera allt til að koma í veg fyrir að
að tillagan nái fram. Þannig að AÐLÖGUNARFERLIÐ að ESB
geti örugglega haldið áfram!
Yfirlýsing Marðar Árnasonar fyrrv. Allaballa og nú sósíal-
demókrata um afgreiðslu á tillögunni strax í sept. er hins
vegar dulbúin hótun til efasemdamanna í VG um stjórnar-
slit. Beygi þeir sig ekki í dauftið hér eftir sem hingað til,
mun fyrsta vinstristjórnin á Íslandi, falla, og þá á þeirra
ábyrgð.
Alltaf að koma betur og betur í ljós þörfin fyrir ALVÖRU
ÞJÓÐFRELSISFLOKKI, HAGSMUNAFLOKKI ÍSLENZKS AL-
MENNINGS!
ÁFRAM HÆGRI GRÆNIR! ÁFRAM ÍSLAND!
Vill afgreiða tillögu um ESB-viðræður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.