Ætlar DV að gerast verktaki fyrir áróður ESB ?
30.8.2010 | 13:46
Svo er að sjá að margir virðast horfa hýrt til allra mútu-
milljarðanna sem ESB hyggst ausa í áróður og fleira til að
þröngva Íslandi inn í ESB. Fréttablaðið hefur fyrir löngu
gerst málpípa ESB-áróðursins, og mun ábyggilega fá
drjúgt greitt fyrir á næstunni. En svo virðist einnig ætla
að vera um DV. Því ritstjóri þess sagði í viðtali á Útvarpi
sögu í morgun að það væri fráleitt að hætta við umsókn-
ina að ESB. Þjóðin yrði að fá að vita hvað væri í pakka-
num, og kjósa svo.
Að viðtalinu að dæma virðist ritstjórinn ætla að helga
blað sitt áróðursmaskínu ESB af enn meiri krafti en hingað
til.- Enda eftir verulega að slægjast sem verktaki fyrir
Brussel-valdið á næstunni. Hann virðist orðinn svo blind-
ur af ESB-trúboðinu, að blekkingin um AÐLÖGUN í stað
umsóknar skiptir hann ENGU MÁLI. Og talandi um ,,pakk-
ann" sem ALLIR vita hvaða innihald ber sem á annað
borð nenna að kynna sér fyrir hvað ESB stendur, er fyrir
löngu orðinn lélegur brandari. En furðulegast er, að
þessi ágæti ritstjóri skuli koma úr úr íslenzku sjávarplássi
vestan af fjörum, og hafa þessa brengluðu skoðun. Að
fjöregg þjóðarinnar, fiskimiðin umhverfis Ísland, skipti
engu máli lengur
Það besta við DV umfram Fréttablaðið er að því er hægt
að segja upp, hvenær sem er. - Gerist það VERKTAKI fyrir
óróður ESB á Íslandi í komandi þjóðfrelsisstríði, munu
fjölmargir áskrifendur DV sem aðhyllast FRJÁLST Ísland,
segja því upp!
Svo mikið er víst!
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Verðum við ekki að kæra þá fyrir landráð líka. Nú þarf bara staðlað Landráðs kæru form og láta dóms kerfið sjá um þetta fólk. Þetta eru skýr lög.
Valdimar Samúelsson, 30.8.2010 kl. 14:18
Þarf ekki jafnvægi á þetta allt saman.
Er mogginn ekki í verktakavinnu fyrir ESB andstæðinga svo eflaust er ágætt að blöðin halli sér í sitthvora svo maður fái jú báðar hlíðar ef maður á að geta myndað sér skoðun.
Vilberg Helgason, 30.8.2010 kl. 14:25
Alla vega er alveg nóg að frá ESB-snepilinn Fréttablaðið inn um lúguna,
að DV bætist ekki við líka! Og það gegn greiðslu.
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.8.2010 kl. 14:28
Vilberg. ESB er þarna að skipta sér að ÍSLENZKUM innanríkismálum á
vítaverðan hátt. Og það stórpóitísku máli. Þú getur ekki borið þetta
saman á þennan hátt.
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.8.2010 kl. 14:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.