Ríkisstjórn sósíalisma andskotans fari frá ! MÓTMÆLUM Í DAG!
1.10.2010 | 00:10
Fjöldagjaldþrot einstaklinga og fyrirtækja ásamt tilheyrandi
uppboðum og fjöldafátækt blasir nú við. Fyrst og fremst vegna
sósíalískrar hugmyndarfræði núverandi vinstristjórnar og flat-
magahætti fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. En ríkisstjórn sósíal-
isma andskotans á Íslandi lúffaði fyrir AGS um að keyra þúsundir
einstaklinga í þrot nú í haust. Talsmaður AGS á Íslandi staðfesti
það endanlega í gær með bros á vör. En einmitt EYMD, FÁTTÆKT
og VOLÆÐI fara oftar en ekki saman við starfsemi AGS og veik-
geðja vinstristjórna. - Enda kjöraðstæður vinstrimennskunnar,
í sögulegu samhengi frá upphafi.
Lamandi og andþjóðleg vinstristjórn kommúnista og sósíal-
demókrata var það versta sem yfir þjóðina gat komið eftir
hið mikla bankahrun. Efnahagshrun sem fyrst og fremst ber
að skrifa á hina sósíaldemókrataíska hugmyndafræði með
hjálp blindum frjálshyggjuöflum. - Er ÞVERNEITUÐU að taka
tillit til ÍSLENZKRA AÐSTÆÐNA. Yfirfærðu erlent regluverk
hannað fyrir milljónaþjóðir yfir á örsmátt hagkerfi örfámennar
þjóðar. Er átti ekki einu sinni mannafla til að framfylgja hinu
stórgallaða regluverki. Og nú ætla þessi sömu óþjóðhollu öfl
að toppa glæpinn og innlima þjóðina í stórríkið ESB. Binda
endalok á Lýðveldið Ísland og fullveldi þess. Gera þjóðina
að endalausum þrælum erlendra nýlendukúgara, sbr. Icesave-
þjóðarsvik núverandi stjórnvalda.- ÞVÍ ER MÁL TIL KOMIÐ AÐ
ÞJÓÐIN RÍSI UPP OG SEGI HINGAÐ EN EKKI LENGRA!
SÖFNUMST SAMAN FYRIR FRAMAN ALÞINGI Í DAG OG MÓTMÆLUM
KRÖFTUGLEGA! Burt með fátæktina, upplausina, spillinguna og
stjórnleysið á Íslandi!
ÁFRAM ÍSLENSKUR FÁNI! ÁFRAM ÍSLENZK ÞJÓÐ! ÁFRAM ÍSLAND!!!
1100 uppboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Já, Guðmundur, AGS ríkisstjórn bankanna, fjármálafyrirtækjanna og peningaaflanna, víki núna strax. Þau passa ekki upp á börn, foreldra og hinn almenna mann. Michael Hudson og Joseph Stiglitz vöruðu okkur við AGS fyrir löngu, þeir unnu þar. Nei, ríkisstjórnin hlustar ekki á nokkurn mann nema peningaöflin. Hættuleg ríkisstjórn.
NEI VIÐ AGS OG ICESAVE.
Elle_, 2.10.2010 kl. 00:01
Jú Elle. Vinstrið hefur ÆTÍÐ ógnað ÞJÓÐLEGUM HAGSMUNUM, sbr. Ísland í
dag!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.10.2010 kl. 00:13
Alveg sammála þér.
AGS eru blóðsugur,
og þetta var mest Evrópu að kenna.
Evrópa hefði átt að sjá að við höfðum ekki mannafla til að átta okkur á ábyrgðinni sem fólst í jafnrétti innistæðueigenda evrópu og öðru eins, og öllum þessum endalausu evrópublaðsíðum sem var skeytt við okkar stuttu og laggóðu Íslandslög.
Þessi hel**ti í evrópu hefðu átt að vara okkur við, en í staðinn lokkuðu þau okkur og plötuðu okkur. Þeir vissu alveg hvað var að koma, þeir vissu alveg að bankarnir okkur höfðu ekkert á bak við sig. Þeir vissu að fjármálaráðherra okkar var að ljúga að þeim... þeir vissu þetta allt, og vildu sjá okkur á hliðinni.
Ég ætla aldrei aftur að treysta útlendingi - núna ætla ég að kjóst Sjálfstæðisflokinn aftur og aftur, þeir er okkar bræður.
Jonsi (IP-tala skráð) 6.10.2010 kl. 11:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.