Þjóðin loks að rísa upp ! GJÖRSAMLEGA vanhæf ríkisstjórn!!!!!!!!!!
2.10.2010 | 00:15
Já bara til hamingju þjóð mín! Loksins er mælirinn fullur!
Hin kröftugu mótmæli og hin réttláta reiði mótmælenda
fyrir framan Alþingi í gær, sannaði það. Smjörþefurinn af
því sem koma skal, segi hin handónýta ríkisstjórn ekki af
sér tafarlaust, þing rofið, og efnt til nýrra kosninga.
Þjóðin vill allsherjar HREINSUN, UPPSTOKKUN og UPP-
BYGGINGU í þágu ALMENNINGS á Íslandi. Upprætingu
spillingar, agaleysis, og yfirgengilegs stjórnleysis og aula-
háttar, sem leiddi til að heilt þjóðfélag fór nánast á haus-
inn. - Þess vegna krefst þjóðin þess að þeir sem hruninu
ollu verði TAFARLAUST sóttir til saka. Útrásarmafíuósar og
allir þeir sem sváfu á þjóðarvaktinni. Þá er það heillög
krafa almennings að hann verði EKKI látin gjalda fjárglæfra
bankamafíunnar á Íslandi. Hvorki með uppsprengdum
lánum með okurvöxtum eða Icesavedrápsklyfjum. Fyrr mun
þjóðin ekki verða sátt.
Síðast en ekki síst þarf Fjórflokkurinn að upprætast. Við
næstu kosningar verða ný framboð og nýtt fólk úr hópi
almennings á Íslandi að taka völdin. Nýtt Ísland í stað þess
hrunda þarf að taka við. Ný ÍSLANDSSÝN!!!
ÁFRAM ÍSLAND! ÁFRAM ÍSLENZK ÞJÓÐ! ÁFRAM ÍSLENZKUR FÁNI!
Tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook. Nýtt stjórnmálaafl............
Margir voru mjög reiðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.