Vinstri öfgamennska gegn íslenzku þjóðfrelsi.
13.10.2010 | 00:15
Árni Þór Sigurðsson þingflokksformaður Vinstri grænna segir
að Vefmiðilinn ,,Evrópuvaktin" sé í gíslingu hægri öfgamanna.
Smugan.is greinar frá. Þarna sem oftar hefur kommúnisti
endaskipti á sannleikanum. Því það er einmitt fyrir tilstuðlan
vinstriöfga manns eins og Árna Þórs að aðförin að fullveldi
Íslands og sjálfstæði, vinstri öfgamennska gegn íslenzku
þjóðfrelsi, var hleypt af stökkunum, með aðildarferlinu að
ESB. Og öfgamennskan var svo yfirgengileg, að að heil kyn-
slóð Íslendinga átti að hneppa í skuldadrápsfjötra (mat Evu
Joly) til að tryggja inngöngumiðann að ESB, sbr. þjóðsvika-
samningurinn um Icesaves undir forystu kommúnistans
Svavars Gestssonar, flokkssamherja Árna Þórs. HEIL KYN-
SLÓÐ ÍSLENDINGA átti að taka á sig skuldadrápsklyfjar
útrásarmafíuósa svo að öfgavinstrihyggja Árna Þórs og
félaga næði fram að ganga. Svo talar þessi sami Árni Þór
um hægri öfgamenn. Menn sem einungis vilja standa vörð
um þjóðfrelsi Íslendinga, og verja þá fyrir nýlendukúgurum.
Sem segir einmitt allt um þetta sjúklega andþjóðlega
kommúníska öfgahugarfar þessa manns.
Vonandi verður kosið sem fyrst svo hægt verður að leiða
alla vinstrisinnaða öfgamenn gegn íslenzku þjóðfrelsi fyrir
Landsdóm. Og ekki síst hina sósíaldemókrataísku. Og þótt
fyrr hefði verið!
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN né ICESAVE né AGS!
tilvís HÆGRI GRÆNIR á facebook.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:18 | Facebook
Athugasemdir
Djöfull ertu klikkaður .
t (IP-tala skráð) 13.10.2010 kl. 00:47
Sæll Guðmundur.
Það er langt síðan ég talað oft og iðulega um það hve mjög meintir vinstri menn væru úlfar í sauðagæru markaðsmennskunnar þar sem m.a. aðild að ESb, var eitthvað sem skyldi á hvers manns disk.
Það hefur einungis komið betur og betur i ljós með núverandi valdhöfum við stjórnartauma.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 13.10.2010 kl. 00:51
Árni Þór ætti síðastur manna að kalla menn öfgamenn, Guðmundur. Heitir það nú öfgar að verja fullveldi landsins?? Og hvað í veröldinni kemur það hægri við?? Maðurinn er allur öfugsnúinn í sínum ´málflutningi´.
Elle_, 14.10.2010 kl. 21:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.