Það er alveg ljóst að kúvending Sjálfstæðisflokksins í Icesave
eru merki þess, að sósíaldemókrataíski armur hans, undir forystu
Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir, hefur nú endanlega náð undir-
tökum í flokknum. Veikleiki Bjarna Benediktssonar formanns hefur
sömuleiðis endanlega afhjúpast. Stórlaskaður Sjálfstæðisflokkur
eftir hrun er nú orðin að sósíaldemókrataísku úrhraki. Hann mun
aldrei öðlast traust aftur, og allra síst sem þjóðhollt borgaralegt
afl á hægri kanti íslenzkra stjórnmála. Enda láta viðbrögðin ekki
á sér standa. Meiriháttar reiði kraumar nú gagnvart hinni sósíal-
demókratiskri forystu flokksins, og hafa margir nú þegar sagt sig
úr flokknum. Við blasir pólitískt uppgjör á hægri kanti íslenzkra
stjórnmála í dag, þar sem hinum sósíaldemókrataíska Sjálf-
stæðisflokki verður endanlega þar úthýst.
Hinn nýstofnaði þjóðholli hægriflokkur. (stofnaður 17 júní s.l)
HÆGRI GRÆNIR, hlýtur nú að fá gott tækifæri á að hasla sér völl
sem hið sanna hægriafl í íslenzkum stjórnmálum. Eftir hin ótrú-
legu svik Sjálfstæðisflokksins í Icesave, ofan á öll þau stóru
mistök sem flokkurinn hefur gert að undanförnu, og sem olli
einu mesta efnahagshruni Íslandssögunar. Allir sannir þjóð-
hollir hægrimenn hljóta því að horfa til þess eina yfirlýsta
hægriflokks sem nú er í boði, Hægri grænna. Dagar Sjálfstæðis-
flokksins sem slíks eru endanlega taldir, vegna ófyrirgefan-
legra svika hans við land og þjóð............
ÁFRAM ÍSLAND! ÁFRAM HÆGRI GRÆNIR!
Óánægja kemur ekki á óvart | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.