Fundarstjóri Bjarna í Valhöll í dag ESB-sinni. Tilviljun?
5.2.2011 | 00:14
Athygli vekur að fundarstjóri Bjarna Benediktssonar
formanns Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í dag er Friðrík
Sophusson fyrrum varaformaður flokksins og yfirlýstur
ESB-sinni. Hefði alveg getað eins valið Þorstein Pálsson
ESB-trúboða. Tilviljun? Klárlega ekki. Þess utan er Friðrik
Icesave-sinni, þannig að valið er þaulhugsað og skipulagt.
Icesave-og ESB-aðildin eru samantvinnuð. Enda halda
ekki sósíaldemókratarnir í Samfylkingunni vatni, og hrósa
Bjarna sínum í hástert, og segja hann hafa styrkt stöðu
sína í flokknum. Horfa til og hafa ekki gleymt yfirlýsingum
hans á síðasta kjörtímabili að vera hallur undir ESB og
að útiloka ekki aðild. - Skjótur frami Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttir kúlulánadrottningar og leiðtoga sósíaldemó-
krataíska arms flokksins, er heldur ekki tilviljun. Hlutverk
hennar er þaulhugsað líka. Að byggja brúna aftur yfir til
Samfylkingarinnar. Icesave er þar einn mikilvægasti brúar-
sporðurinn. Þaðan á svo leiðin greiða að liggja til Brussel.
Sjálfstæðisflokkurinn er í upplausn! Enda miklu fremur
byggður á hagsmunapólitík fremur en hugsjón. Í miklu
þjóðfélagsumróti eins og nú, splundrast slíkur flokkur, í
stað þess að styrkjast og eflast sem þjóðhollt ábyrgt hægri-
sinnað afl, er hefur STJÓRN á hlutunum, og heldur upp AGA,
LÖGUM og REGLU. Enda gerðist eitt mesta efnahagslega
hrun Íslandssögunar í stjórnartíð þessa ístöðulausa Sjálfs-
stæðisflokks. Og nú hittir svo skrattinn ömmu sína!
Þegar hægri kantur stjórnmála er í upplausn, ríkir upp-
lausn og stjórnleysi í viðkomandi þjóðfélagi. Ísland er
eitt albesta dæmið þess. Á Íslandi hefur aldrei verið til
ALVÖRU hægriflokkur á þjóðlegum grunni. Þess vegna
hefur óstöðuleikinn fengið að leika þar lausum hala, sem
loks leiddi til hrunsins mikla. Trú manna á Sjálfstæðisflokk-
inn sem hægriflokk var ein stór blekking. Upplausn hans
nú sannar það! Upplausnarástandið í þjóðfélaginu sem
hann olli sannar það! Því er eitt brýnasta verkefnið í dag
að byggja upp ALVÖRU þjóðhollt hægrisinnað afl. Hvort
það verður HÆGRI GRÆNIR eða eitthvað annað á hins
vegar eftir að koma í ljós. - En tómarúmið til hægri er til
staðar, og það verður að fylla. Framtíð Íslands, uppbygg-
ing og nauðsynlegt stjórnlyndi ákallar það. STRAX!
![]() |
Bjarni með fund í Valhöll um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:18 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.