Sjálfstæðisflokkurinn orðinn að kratiskum Icesave-flokki !
5.2.2011 | 16:11
Eftir að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins,
hefur afrekað að gera flokkinn að kratiskum Icesave-flokki,
og sett hann þar með á stall hinna vinstrisinnuðu Icesave-
flokka, hefur ímynd hans sem þjóðholls borgaralegs flokks
endanlega hrunið. ALDREI oftar getur formaður Sjálfstæðis-
flokksins gagnrýnt skattapíningu vinstristjórnarinnar. Því
með þessu er Sjálfstæðisflokkurinn að samþykkja einn
stærsta skattapakka sögunar, fer allt fram sem horfir, og
það skatt sem ÞJÓÐIN BER ENGA LAGALEG SKYLDA TIL AÐ
GREIÐA! Þá getur þessi sami Bjarni aldrei sakað aðra um
hringlandahátt, því síður kommúnistaleiðtogann Steingrím
J, enda hrósar leiðtogi kommúnista formanni Sjálfstæðis-
flokkinn í hástert í kúvendingunni.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú endanlega komið út úr
skápnum sem hreinræktaður sósíaldemókrataaskur flokk-
ur. Hefur gegnum áratugina siglt undir fölsku flaggi sem
eitthvert þjóðholt borgaralegt afl. En nú með hinum stór-
kostlegu Icesave-svikum hefur hann opinberað sitt rétta
sósíaldemókrataíska eðli, enda oftar en ekki unnið með
sósíaldemókrataísku öflum. Krataleiðtoginn innan flokks-
sins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hefur nú unnið af-
gerandi sigur. Hennar hjartans mál, ESB-aðildin, sér hún
nú innan seilingar, eftir að hafa rutt helsta tálmanum,
Icesave, úr vegi, a.m.k innan Sjálfstæðisflokksins.
Allir sannir þjóðhollir menn og konur með þjóðleg
borgaraleg viðhorf að leiðarljósi, og sem stutt hafa Sjálf-
stæðisflokkinn, hljóta nú að yfirgefa hann. Svona svika-
flokk getur enginn stutt lengur. Á hægri kanti íslenzkra
stjórnmála hlýtur því að upprisa nýtt sterkt pólitískt
borgaralegt afl á þjóðlegum grunni. Hvort það verður
HÆGRI GRÆNIR eða annað afl á eftir að koma í ljós.
En eitt er víst. Tómarúmið til hægri mun fyllast, og það
mjög fljótt.
tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook.
Margir spurðu um þjóðaratkvæðagreiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.