Ótrúleg þessi Icesave-manntýpa
13.3.2011 | 00:24
Já hún er ótrúleg þessi Icesave-sinnaða manntýpa!!!
Er hyggst vakna snemma þann 9 apríl n .k í misjöfnu
verði. Ræsa bílinn sinn og aka honum ómælda km. fram
og til baka á kjörstað, á rándýru bensíni, bara til að setja
X-já við Icesave. Já pælið í þessu. Já við stórskuld sem
viðkomandi skuldar ALLS EKKI, og því síður þjóðin. Já við
ólögvarinni KRÖFU óvinveittra nýlenduvelda er glæpamenn
skópu, og sem samtímis breytist í lögvarða SULD. Og það
án þess að glæpurinn sé á nokkurn hátt rannsakaður, og
því síður að glæpamafíuósarnir séu handteknir og látnir
svara til saka. Reikningurinn sendur bara sísvona á kjós-
endur, - skattgreiðendur. Óútfylltur vixill til framtíðar. Hang-
andi yfir Icesave-sinnanum og þjóðinni næstu áratugi.
Já Icesave-sinnum, sem þó virðast alls ekki tilbúnir til að
greiða skuldir annara í einkalífinu. Skrítið!
Já hún er ótrúleg þessi Icesave-sinnaða manntýpa er
hyggst vakna upp grjótsyfjuð að morgni þess 9 apríl til
að geta sett sitt STÓRA JÁ við Icesave með bros á vör.
Vitandi um áhættuna að rústa íslenzku velferðarkerfi til
frambúðar. Og veitt þar með nýlenduveldunum Bretum
og Hollendingum ALGJÖRT sjálfdæmi í Icesave. Því í dag
verða þeir að lúta íslenzkum dómsstólum, en eftir JÁ-ið
erlendum gerðardómi, er alfarið mun lúta vilja Breta og
Hollendinga, sem ekki verður hægt að vísa til æðra dóms-
stígs.
En ótrúlegust er þó sú Icesave-sinnaða manntýpa ef hún
segist vera bæði á móti hinni vonlausri ríkisstjórn og ESB-
aðild, en ætlar samt að samþykkja Icesave. Því falli Icesave
þann 9 apríl n.k fellur bæði ríkisstjórnin og ESB-aðildarum-
sóknin. Já, þessi Icesave-manntýpa og hennar furðulegu
sálarkomplexar eru með ÖLLU óskiljanlegir. GJÖRSAMLEGA!
Algjört absúrd fyrirbæri!!!!!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki fólk sem vill endilega leggja þennan klafa á börnin sín og barnabörn. Og halda að þau hafi einhverja reisn fyrir. Þegar vitað er að bretar og hollendingar eru að plata okkur upp úr skónum. Og hlæja að okkur í þokkabót.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.3.2011 kl. 10:45
Einmitt Ásthildur.
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 13.3.2011 kl. 16:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.