Íslenzkur almenningur engir aular ! Segja því NEI við Icesave!


   Þótt nokkrar skoðanakannanir segja að Icesave verði
samþykkt, er full  ástæða  til  að vefengja það.  Af þeirri
einföldu ástæðu að  hvorki  almemmingur  á  Íslandi né ís-
lenzkir kjósendur eru AULAR! Því ENGINN þjóð í veröldinni
færi að samþykkja sjálfviljug ólögvarðar skuldadrápsklyfjar
byggðar á ólögvarinni  kröfu  óvinveittra  nýlenduvelda  á
grundvelli svikamyllu stórglæpamanna í einkarekstri. Glæpa
sem auk þess eru algjörlega óupplýstir og órannsakaðir. Já 
ENGIN ÞJÓÐ væri svo heimsk og vitlaus  AULAÞJÓÐ að sam-
þykkja slíkt í frjálsri þjóðaratkvæðagreiðslu. ENGIN!

    Þess utan myndi SÉRHVER þjóð sem væri jafn illa löskuð
og Íslendingar af bankabraski útrásarmafíuósa, og er ollu
einu mesta efnahagslegu hruni Íslandssögunar, ekki  fara
að verðlauna kvalara sína með því að gangast í ábyrgð fyrir
glæpum þeirra. Nei þvert á móti myndi slík þjóð nota fyrsta
tækifæri til að koma fram réttmætum hefndum á glæpaskúrk-
ana. Og jafnframt að refsa þeim andþjóðlegu aulum í stjórn-
mála- og embættismannastétt sem brugðust þjóðinni á ör-
lagastund með því að standa ekki í lappirnar gegn Icesave-
kúguninni.

    Þann REFSIVÖND hefur þjóðin á loft þann 9 apríl n.k!!!!!! 

   ÁFRAM ÍSLAND!   N E I  VIÐ ICESAVE-HELSI!  

   p.s nei tilheyri sem betur fer engri aula-þjóð!  
mbl.is 56% segja ætla að styðja lögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Ég geri allt sem í minu valdi stendur,til að opna augu fólsk fyrir hræðsluáróðri og upploginni skömm,sem stjórnarfylgjendur klína á okkur,vegna glæpagengisins.

Helga Kristjánsdóttir, 26.3.2011 kl. 01:29

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Gott hjá þér Helga. Geri það sama. En svo bara kemur í ljós 9 apríl
hvort þjóðin er AULAÞJÓÐ eða EKKI! Trúi 100% að þjóðin okkar hati hina
þjóðfjandsömu aula er komu okkur á vonarvöl  og refsi þeim mériháttar í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Trúi 100% á það sem hinn almenni ÍSLENDINGUR!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 26.3.2011 kl. 01:45

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæl verið þið við stöndum saman og látum ekki flokksmafíuna með elítuna að leiðarljósi vinna sigur gegn okkur lýðræðissinnum og íslandsvinum.

Sigurður Haraldsson, 26.3.2011 kl. 06:47

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Sigurður!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 26.3.2011 kl. 20:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband