Valdahroki Jóhönnu orðinn þjóðhættulegur
19.10.2011 | 00:08
Valdahroki og valdníðsla Jóhönnu Sig sem á að teljast
forsætisráðherra er komið á nýtt og þjóðhættulegt stig.
Um það vitna m.a bréfaskriftir og grófar tilraunir hennar til
að nánast yfirtaka forsetaembættið. Þagga niður í því. En
sem kunnugt er má einmitt þakka forsetanum herra Ólafi
Ragnari Grímssyni fyrir að hafa forðað Íslandi frá allsherjar
gjaldþroti, hefði ráðabrugg Jóhönnu Sig í Icesave-þjóðsvik-
unum náð fram að ganga. Þá er vitað að forsætisráðherra
er í mikilli nöp við forsetann við að þvælast fyrir hinu ógeð-
felda ráðabruggi þessarar sömu Jóhönnu Sig og fylgifiska
hennar við að binda endi á fullveldi og sjálfstæði Íslands,
með því að reyna að troða því inn í hið gjörspillta deyjandi
Evrópusamband.
Ótal dæmi eru um freklega valdníðslu Jóhönnu Sig til að
koma hinum ýmsu þjóðfjandsömu ráðabruggum fram. Hikar
ekki við að fara á mis við stjórnskipan lýðveldisins ef því er
að skipta eins og kemur fram í bréfi forsetans sem birt var
í gær. Og í þessu öllu ógeðfelda og þjóðfjandsama ráða-
bruggi nýtur hún stuðnings helsta kjarna af leifum hins
afdankaða kommúnisma á Íslandi í dag!
Ítrekaðar opinberar árásir Jóhönnu Sig sem telst enn
forsætisráðherra Íslands á forseta lýðveldisins eru komnar
á þjóðhættulegt stig. Ekki síst þar sem þær varða efnahags-
legt og stjórnarfarslegt sjálfstæði þjóðarinnar. Undir slíkum
kringumstæðum verður ekki unað lengur. Ríkisstjórn Jóhönnu
Sig VERÐUR að víkja! ÞEGAR Í STAÐ! Hennar tími er liðinn!
www.afram-island.is
Fordæmalausar bréfaskriftir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:14 | Facebook
Athugasemdir
Hrun-Hanna getur ekki orðið einvaldur meðan að Óli "þvælist fyrir".
33 ár eru nóg fyrir Hrun-Hönnu og ætti hún að sjá sóma sinn (ef einhver er) að hunskast beint á elliheimili.
Óskar Guðmundsson, 19.10.2011 kl. 08:05
Sammála pistlinum, Guðmundur. Það verður að stoppa þennan stórhættulega stjórnmálamann.
Elle_, 19.10.2011 kl. 21:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.