Þjóðhættulegir sósíaldemókratar þinga
22.10.2011 | 00:21
Hinir þjóðhættulegu sósíaldemókratar á Íslandi þinga nú um
helgina á landsfundi. Sem urðu arkitektar og skópu eitt mesta
efnahagshrun Íslandssögunar. - Með ESB-regluverkið að vopni
gegnum hinn stórgallaða EES-samning. - Sem þeir lugu inn á
þjóðina með hjálp sósíaldemókrata í öðrum flokkum. Og ætla nú
að gera enn betur og binda endi á fullveldi og sjálfstæði Íslands
með því að innlima það inní hið nýja Sovét Evrópu, ESB. Sem nú
er í upplausn og á brauðfótum eins og gamla Sovétið forðum.
Sósíaldemókrataisminn á Íslandi hefur ætið unnið gegn íslenzkum
þjóðarhagsmunum og talað uppgjöf í þjóðina á grundvelli andþjóð-
legra gilda og viðhorfa. Drógu lappirnar í lýðveldistökunni, börðust
gegn baráttu þjóðarinnar yfir yfirráðum yfir sínum dýrmætu
fiskimiðum umhverfis Ísland, og tóku stöðu með nýlenduveldum
ESB í Icesave gegn hinum íslenzka almúga, þjóðinni. Er hefði nú
þegar leitt til allsherjar þjóðargjaldþrots hefði þjóð og forseti ekki
afstýrt því. Litu svo hryðjuverkalög Breta á íslenzka þjóð með vel-
þóknun. Hin sósíaldemókratiska öfga-alþjóðahyggja og rasistaeðli
gagnvart eigin þjóð virðist engin takmörk sett!
Megin verkefni íslenzkra stjórnmála er að úthýsa sósíaldemókrötum
og kommúnískum fylgifiskum þeirra úr ríkisstjórn og íslenzku stjórn-
kerfi. Og það til frambúðar! Það að hér skuli sitja forsætisráðherra
úr Hrunstjórninni alræmdu er þvílíkur SKANDALL að engin orð fá lýst.
ÁFRAM ÍSLAND á grundvelli framfarasinnaðrar ÞJÓÐHYGGJU!
Mun klára aðildarviðræðurnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Algjörlega sammála þer þettað eru þjóðhættuleg kvikindi öfl sem vinna gegn þjóðini á öllum sviðum þeim þarf að útríma úr Íslenskri pólitík
Örn Ægir (IP-tala skráð) 22.10.2011 kl. 01:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.