Sjálfstæðisflokkurinn vankaður stjórnmálaflokkur
16.11.2011 | 22:31
Eðlilega er Sjálfstæðisflokkurinn vankaður stjórnmálaflokkur.
Berandi ábyrgð á einu mesta efnahagslegu hruni Íslandssögunar
ásamt sósíaldemókrataísku vinum sínum í Samfylkingunni. Og
frambjóðendur til formanns bera keim af því. Hanna Birna á
Útvarpi Sögu í dag fylgjandi Schengen og EES-ruglinu, og vill
óð að erindreki kínverska Kommúnistaflokksins fái að kaupa
stórt landsvæði á Íslandi. Boðandi áframhaldandi sáttarstjórn-
mál til vinstri, sbr. Gnarrista daður hennar í borgarstjórn fyrir
skemmstu. Og Bjarni Ben vikapiltur vinstriaflanna, sbr. í Icesave,
þvert gegn samþykktum Landsfundar, og sér til þess nú að
Landsfundur álykti EKKI um að ESB-umsóknin verði dregin til
baka, enda þekktur fyrir hringlandahátt í Evrópumálum.
Ekki að furða að fjöldi hægrisinnaðra kjósenda horfi nú til
nýrra framboða til hægri. Eins og t.d til HÆGRI GRÆNNA sem
stofnaðir voru 17 júní 2010 og hafa nú sett fram athyglisverða
og ítarlega stjórnmálastefnu, sbr. www.afram-island.is Þar er
m.a sagt ÞVERT NEI við ESB og Schengen, og að tvíhliða við-
skiptasamningur við ESB verði gerður sbr. Sviss í stað EES.
Að gerðir verði fríverslunarsamningar við USA, Rússland. Ind-
land, S-Afríku og Kína. Að fækka sendiráðum a.m.k um 6, og
leggja Þróunarsamvinnustofnun Íslands niður, ásamt áherslu
á málefna Norðurslóða svo fátt eitt sé nefnt.
Já Sjálfstæðisflokkurinn er vankaður stjórnmálaflokkur. Brást
þjóðinni sem stefnufast borgaralegt stjórnlynt afl í þágu almenn-
ings, og til að halda vinstriöflunum í skefjum. Enda oftar en ekki
daðrandi til vinstri, fyrir tilstuðlan sósíaldemókratanna í flokknum.
Slíkur vankaður stjórnmálaflokkur hlýtur að klofna!
www.xg.is
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.