ESB-mútustyrkir á fullveldisdaginn


    Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra gat ekki sýnt
íslenzkri þjóð eins mikla litilsvirðingu  og  móðgun en þegar
hann valdi  sjálfan fullveldisdag Íslendinga til að leggja fram
á Alþingi frumvarp um svokallaða IPA styrki  frá ESB, sbr.RÚV.
is í dag.  En ESB ráðgerir að verja  hvorki  meir né  minna en
heilum 5 milljörðum í aðlögun Íslands að ESB gegnum þessa
mútustyrki sína.  Og  til að kóróna undirlægjuháttinn og van-
virðu gagnvart íslenzkri þjóð leggur hann til að allt verði þetta
SKATTFRJÁLST fyrir ESB!  Já SKATTFRJÁLST fyrir valdhafanna í
Brussel meðan hann skattpínir íslenzka þjóð inn að beini!

   Hin andþjóðlega raggeit Steingrímur J kallar ekki  allt ömmu
sína  þegar kemur  að því að vinna gegn íslenzkum hagsmunum,
hvort heldur er innlimun Ísland inn í hið deyjandi sovéska  ESB,
eða þá  Svavars-Icesave-þjóðsvikarasamningurinn.  En stóra
spurningin er hins vegar sú hvort Alþingi Íslendinga samþykkir
þessar skattfrjálsu mútugreiðslur til innlimunar Íslands inn í ESB?

   Þegar þetta mútufrumvarp ESB kemur til umræðu og afgreiðslu
á Alþing verður VEL og RÆKILEGA tekið eftir hvaða ESB-sinnar
greiða  því  atkvæði og hverjir EKKI! En ENGINN ESB-andstæð-
ingur eða SANNUR ÍSLENZKUR ÞINGMAÐUR getur ljáð slíku við-
bjóðslegu og svifyrðalegu and-slenzku frumvarpi stuðning.   

   Það að taka á móti slíkum MÚTUM frá ERLENDU RÍKJASAM-
BANDI til áróðurs þess og áhrifa á islenzk innanríkismál  svo
þröngva megi Íslandi ínn í  það gegn sterkum þjóðarvilja getur
ekki flokkast undir neitt annað en GRÓF ÞJÓÐARSVIK og þaðan
að verra!

    Táknrænt að það skuli vera leiðtogi hérlendra kommúnista
sem leggur fram slíkt þjóðsvikafrumvarp á sjálfan fullveldis-
degi Íslendinga.   - ÞVÍLÍKUR SKANDALL!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Enda er Steingrímum gjörsamlega að jarða VG og bölvuð sé minnig hans.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 1.12.2011 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband